Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 21
Mynd 2. Akkur 93012. Dœtur hans eru mjólkurlagnar,
með mikið bolrými og dýpt, spenar fremur grófir og
mjaltir breytilegar.
legur og ósamstæður hópur
af kúm og stendur í þeim
efnum mjög að baki dætr-
um nauta í næsta árgangi á
undan.
Eins og þegar hefur
komið fram eru að vísu
mörg af þessum nautum að
skila sterkbyggðum kúm,
sérstaklega á það við um
flesta af Prestssonunum og
báða Þistilssynina.
Júgurgerð er feikilega
breytileg og í heildina ekki
nægjanlega góð. Klerkur
93021 er að skila fjölmörg-
um kúm sem hafa einhverja allra
bestu júgurgerð sem sjá má hjá ís-
lenskum kúm og einnig er ágæt
júgurgerð hjá mörgum af dætrum
Þistilssonanna, Foss 93006 og
Snarfara 93018. Hjá dætrum Gáska
93004, Fífils 93008, Hnokka
93016, Ýmis 93022, Gára 93023 og
Blakks 93026 ber aftur á móti of
mikið á kúm með talsverða galla í
júgurgerð.
Hjá dætrum flestra þessara nauta
ber alltof mikið á of grófum spen-
um. Undantekningamar í þeim efn-
um eru dætur Foss 93006, sem hafa
mjög góða spenagerð, og auk þess
verða dætur Snarfara 93016, Hrings
93019, Klerks 93021 og Torfa
93025 einnig að teljast jákvæðar
gagnvart þessum eiginleika. Þegar
á heildina er litið er þetta sá eigin-
leiki þar sem erfðaeðli þessara
nauta verður að teljast lak-
ast.
Þegar litið er á meðaltal
fyrir dætur einstakra nauta
í heildardómi sést að Foss
93006 er að skila jafnfall-
egustu kúnum, með 82,8
stig að meðaltali úr útlits-
matinu. Þá koma dætur
Klerks 93021 með 82,5
stig, dætrahópar hjá Snar-
fara 93018 og Torfa 93025
hafa báðir 82,2 stig að jafn-
aði og dætur Hnúts 93013
eru með 82 stig að jafnaði.
Þar eru taldir þeir systra-
hópar sem segja má að hafi
einkennst af fallegum og gallalitl-
um kúm.
Örfá einkennisatrið
einstakra dætrahópa
Hér verður í fáum orðum reynt að
benda á nokkur ytri einkenni hjá
einstökum dætrahópum sem fram
komu við skoðun þeirra.
Gáski 93004. Fjölbreyttir litir.
Sterkbyggðar kýr. Allgóð júgur-
gerð, gallar í spenagerð. Gallar í
mjöltum áberandi. Gott skap.
Foss 93006. Rauðar eða kolóttar
kýr. Góð skrokkbygging. Mjög góð
júgur- og spenagerð. Yfirleitt bæði
góðar mjaltir og skap.
Fífill 93008. Rauður litur áber-
andi. Ákaflega sundurlausar kýr að
gerð og miklir gallar áberandi.
Gróf bygging algeng. Júgurgerð
breytileg, spenar oft grófir. Gallar í
mjöltum og skapi all áber-
andi.
Akkur 93012. Rauðar
og rauðskjöldóttar kýr al-
gengar. Rýmismikil bol-
bygging. Góð júgurgerð.
Grófir spenar. Breytileg
umsögn um mjaltir og
skap.
Hnútur 93013. Rauður
litur algengur. Jafnar kýr,
gallalitlar í bolbyggingu.
Yfirleitt góð júgur- og
spenagerð. Mjaltir aðeins
breytilegar en skap gott.
Hraukur 93015. Brönd-
óttur litur áberandi. Litlir gallar í
bolbyggingu. Góð júgurgerð.
Grófir spenar. Mjaltir allgóðar en
skap ekki nægjanlega þjált.
Hnokki 93016. Rauður eða kol-
óttur litur áberandi. Utlögumiklr
kýr með þaklaga malir. Varla nógu
sterkleg júgurgerð. Spenar full
grófir. Fremur góð umsögn um
mjaltir og skap.
Reyr 93017. Rauðar eða brönd-
óttar kýr. Nokkuð sterklegar kýr.
Þokkaleg júgurgerð en grófir og
gallaðir spenar. Mjaltir alloft gall-
aðar en skap þokkalegt.
Snarfari 93018. Kolóttar kýr
mjög algengar og gefur ekki rauðar
kýr. Sterklegar en ekki rýmismiklar
kýr. Góð júgur- og spenagerð.
Mjaltir gallalitlar en skap full
breytilegt.
Hringur 93019. Rauð- eða brand-
skjöldóttar kýr margar.
Snotur bolbygging. Júgur-
og spenagerð yfirleitt
fremur góð. Mjög áber-
andi gallar í mjöltum
skemma þennan systrahóp
mjög. Skap gott.
Klerkur 93021. Rauður
og kolóttur grunnlitur, oft
skjöldóttar og mikið hvítar
kýr. Bolbygging góð. Júg-
urgerð oft sérstaklega góð
og spenagerð nokkuð góð.
Ögn breytileg umsögn um
mjaltir og skap þó að veru-
legir gallagripir séu fáir.
Ýmir 93022. Rauðar kýr
Mynd 3. Snarfari 93018. Dœtur hans gefafremur efnaríka
mjólk, júgur- og spenagerð er góð og afurðir, mjaltir og
skap í meðallagi.
FREYR 3/2000 - 21