Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 22
Mynd 4. Klerkur 93021. Dætur hans gefa mjólk með
próteinhlutfall í meðallagi, júgur stórglœsileg, löng og vel
borin, mjaltir og skap aðeins breytilegt.
algengastar. Þokkalegt bol-
rými, en gallar í malagerð
og fótstöðu talsverðir.
Breytileg júgurgerð og
sama á við um spena.
Mjaltir og skap talið gott.
Gári 93023. Rauðar og
kolóttar kýr algengastar.
Þokkalegt bolrými, þak-
laga malir og þröng fót-
staða. Júgurgerð breytileg
og ekki nægjanlega traust-
leg og spenar grófir. Frem-
ur jákvæð umsögn um
mjaltir og skap.
Torfí 93025. Rauðskjöld-
óttar kýr algengar. Fallegar kýr að
bolbyggingu. Júgurgerð góð og
spenar yfirleitt einnig vel lagaðir.
Umsögn um mjaltir og skap í tæpu
meðallagi.
Blakkur 93026. Kolóttar kýr
nokkuð áberandi. Fremur rýmislitl-
ar kýr með þaklaga malir. Júgur-
gerð ákaflega breytilega frá því al-
besta til þess afleitasta sem fínnst
hjá íslenskum kúm. Spenar vel lag-
aðir. Góðar mjaltir. Gallar í skpi
verulega áberandi.
Svartur 93027. Svartar kýr áber-
andi. Útlögulitlar og ekki nægjan-
lega sterkbyggðar kýr. Júgurlögun
allgóð en ekki nægjanlega sterkleg.
Gallalítil spenagerð. Ögn breytileg
umsög um mjaltir og nokkuð um
skapgalla.
Ölur 93032. Mjög breytilegir litir
á kúnum. Skrokkbygging gallalítil.
Júgurgerð nokkuð góð, en full lang-
ir spenar nokkuð áberandi. Mjaltir
fremur góðar en skap breytilegt.
Mjaltaathugun
Upplýsingar um mjaltir kúnna
fást eftir tveim leiðum. Annars veg-
ar við dóma á þeim kúm sem koma
til skoðunar en auk þess er leitað
upplýsinga með svokallaðri mjalt-
athugun sem hefur verið notuð á
þriðja áratug og byggir á innbyrðist
röðun fimm kúa á búinu. Því til við-
bótar eru þar tilgreindir nokkrir
helstu mjaltagallar sem vel eru
þekktir hjá íslenskum kúm.
I töflu 1 eru gefnar helstu tölur
sem fram komu í mjaltaathuguninni
um einstaka dætrahópa. Þegar þess-
ar tölur eru skoðaða sést vel gífur-
lega mikill munur á milli þessara
dætrahópa.
Þarna eru því miður
ekki margir dætrahópar
sem skera sig mjög úr fyr-
ir afbragðsgóðar mjaltir.
Foss 93006 gefur að vísu
dætur sem sýna algera
yfirburði fyrir þennan eig-
inleika langt umfram önn-
ur naut, það eina sem
ástæða er að finna að þeim
er að sumar þeirra eru
greinilega það lausmjalta
að þær flokkast lekar. Þá
eru niðurstöður einnig já-
kvæðar fyrir dætur Öls
93032 og allir Suðrasyn-
imir eru í þessum efnum að skila
kúm sem virðast jákvæðar. Hins
vegar eru margir hópamir með of
mikla galla í þessum eiginleika og
tvö naut virðast vera að skila
dætmm sem segja má að sýni þarna
afleitan dóm, en það eru Fífill
93008 og Hringur 93019, sem bæði
em að gefa verulega mikið af mjög
þungmjalta kúm. Eins og áður er
hlutfall kúa, sem skráðar eru
mismjalta, alltof hátt en í þeim
efnum er feikilega mikill munur á
milli bú mjög áberandi sem gerir
meðhöndlun upplýsinga ætíð
aðeins örðugri.
I mjaltaathugun em umráðamenn
einnig beðnir um að gæðaraða kún-
um. Þetta er að sjálfsögðu ákaflega
óljóst skilgreindur eiginleiki. Gildi
hans er hins vegar sá að fá vísbend-
ingu um hvort þessar kýr séu á
Mynd 5. Blakkur 93026. Dœtur hans eru afurðakýr en Mynd 6. Svartur 93027. Dœtur hans eru mjólkurlagnar
með lítið bolrými, júgurgerð er mjög breytileg og of lítil en fremur tilkomulitlar kýr, júgurgerð í lagi og vel lagaðir
kynfesta, mjaltir góðar en skap gallað. spenar.
22 - FREYR 3/2000