Freyr - 01.04.2000, Síða 14
Nautsmœðraskráin
árið 2000 og afurðahæstu kýrnar
á landinu árið 1999
Eins og í öðrum löndum, sem
hafa víðtækt og öflugt
skýrsluhald í nautgriparækt,
er til á prenti yfirlit um afurðahæstu
kýr í landinu á hverjum tíma þannig
að auðvelt er að rekja þróun í þeim
efnum. Með þeirri miklu afurða-
aukningu sem orðið hefur hér á
landi á síðustu tveimum árum verða
að vísu eldri viðmiðanir um afurðir
í þessu sambandi aðeins afstæðar.
Til þess að mögulegt sé hins vegar
að sjá þróun í stofninum þá verður
þeim sömu viðmiðunun haldið hér
áfram.
Árið 1999 voru á skýrslu 5448
(4694) kýr sem mjólkuðu 5000 kg
af mjólk eða meira. Mörkunum 200
kg af mjólkurfitu eða meira náðu
samtals 5961 (4957) kýr og 200 kg
af próteini eða meira framleiddu
1596 (1252) kýr. í sviga eru sam-
svarandi fjöldatölur frá árinu 1998
sem sýna að í öllum hópum er um-
talsverð fjölgun eða sem nemur á
bilinu 16-27%. Þar sem fjölgun á
kúm á skýrslu er óveruleg er hér
nánast eingögnu um að ræða fjölg-
un vegna aukinna afurða.
f töflu 1 er eins og áður gefið yf-
irlit um stærstu dætrahópanna sem
er að finna í hópi hámjólka kúnna,
en til að systrahópar komi með í
þessa töflu er gert að skilyrði að hið
minnsta séu 20 dætur nautsins sem
ná að framleiða 5000 kg af mjólk
eða meira. Það sem öðru fremur
hlýtur að vekja athygli við þessa
töflu, líkt og á síðasta ári, er hinn
mikli fjöldi af ungum nautum sem
enn eiga fremur fáar dætur sem
þama komast á blað. Það er í raun
aðeins staðfesting á því sem kyn-
bótamat þessara nauta hefur verið
að segja okkur að þau eru að skila
eftir
Jón Viðar
Jónmundsson,
Bænda-
samtökum
íslands
afkastameiri kúm að jafnaði en við
höfum áður haft í stofninum.
Langsamlega stærsti dætrahópur-
inn að þessu sinni, eins og getum
var leitt að á síðasta ári að yrði, eru
dætur Andvara 87014 en samtals
231 af dætrum hans skilaði yfír
5000 kg af mjólk árið 1999. Það
þarf tæpast að taka það fram að
þetta er langstærsti systrahópur sem
nokkru sinni hefur náð þessum
mörkum hér á landi. Af þessum
kúm voru 74 sem skiluðu 200 kg af
mjólkurpróteini eða meira. Það var
löngu þekkt að Andvari gefur feiki-
lega getumiklar kýr og nú á hann
fyrsta sinni feikilega stóran hóp
dætra á góðum aldri í framleiðslu.
Ósagt skal látið hvort dætrum hans
takist samt að halda þessum yfir-
burðum nema í þetta eina skipti
vegna þess að á næsta ára verða
komnir stórir dætrahópar nautanna
sem fædd voru árið 1988 og þar
koma til sögunnar margir systar-
hópar sem eiga eftir að sýna athygl-
isverðar niðurstöður á allra næstu
árum. Á þessum lista eru síðan
næststærstu dætrahópamir, undan
Þræði 86013 og Bassa 86021, þar
hafa Þráðardætur vinninginn í
mjólkurmagni en Bassadæturnar
hins vegar þegar horft er til efna-
magns vegna hinna háu hlutfalla
efna í mjólk sem þær eru löngu
þekktar fyrir. Síðan koma þeir í röð
Daði 87003, Hólmur 81018, Þegj-
andi 86031, Þistill 84013 og Suðri
84023, en dætur þeirra tveggja síð-
astnefndu voru búnar að vera á
toppi þessa lista nokkur undan-
gengin ár, en gerast nú fullorðnar
kýr og fer því hratt fækkandi.
Þrátt fyrir feikilega mikla afurða-
aukningu á árinu 1999 er ekki sett
met um afurðir einstakra kúa á ár-
inu. Árið einkennist hins vegar af
miklu fleiri kúm en áður hefur
þekkst sem eru að skila miklum af-
urðum. Samtals 81 kýr mjólkaði
8000 kg af mjólk eða meira á árinu
1999 og eru þær sýndar í töflu 2, en
árið 1998 voru 40 kýr á landinu
sem náðu þessum mörkum. í hópi
þessara allra afurðahæstu kúa eru
dætur Þistils 84013 flestar eða sjö,
Andvari 87014 á þar sex dætur og
Bassi 86021 fjórar.
Afurðahæstu kýrnar
Tvær kýr mjólka yfir 10 tonn
mjólkur á árinu. Afurðahæsta kýrin
er Kolbrá 68 á Ingunnarstöðum í
Geiradal sem mjólkaði 10.433 kg af
mjólk með 3,91% fitu, eða 408 kg
mjólkurfitu, og 3,08% prótein mæl-
ist í mjólkinni sem gefur 321 kg af
mjólkurpróteini. Þessi kýr bar ekki
á árinu en í árslok 1998 og fer í
rúmlega 40 kg hæstu dagsnyt. Hins
vegar er Kolbrá felld snemma í
nóvember, þannig að talsvert vantar
á að um ársafurðir sé að ræða hjá
henni. Þessi kýr var dóttir Bjarts
83024 og Subbu 16, sem var þekkt
afrekskýr og nautsmóðir. Hin kýrin
sem nær þessum mörkúm er
Lukkuleg 20 á Efri-Brunná í Saur-
bæ. Hún mjólkaði 10.061 kg af
14 - FREYR 3/2000