Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 36

Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 36
DNA bóluefni Mynd 4. Beina má ónœmissvari á Th2 braut me>ð DNA-bóluejhi. Einnig mun reynt að snúa Th2 svari í HSA ofnæmishestum í Thl svar og athugað hvort hægt er að laga ofnæmið með því. þessi vinna er hafin á Keldum. 3. Þróa aðferðir til bólusetninga gegn ofnæminu. Finna þarf hentugar tjáningarfeijur fyrir hesta og bestu leið til að sprauta í þá bóluefninu. HSA líkanið verður notað til að þróa DNA bóluefni. Þegar genin fyrir ofnæmisvakann úr mýflugum hafa verið einangruð, verða þau sett á þá tjáningarferju sem best hefur reynst og hestar bólusettir með henni. Ef ekki dugir að bólusetja með genunum þá verða ofnæmispróteinin úr flugunni líka framleidd og notuð í endurbólusetningar með Thl ónæmisglæðum. Fylgst verður með ónæmissvari hestanna, hvort það er á Th 1 eða Th2 braut. Ef tekst að finna samsetningu af bóluefni og bólusetningaraðferð sem beinir ónæmissvari hesta gegn ofnæmisvökum Culicoides mýflugunnar inn á Th 1 braut þá er kominn grundvöllur til að bólu- setja hesta. Þessir hestar yrðu síðan fluttir, ásamt óbólusettum samanburðarhópi, til útlanda, á svæði þai- sem mikið er af flugu og athugað hvort þeir eru í raun og veru varðir gegn flugunni. Rannsóknir í músum hafa sýnt að auk þess að verja mýs gegn of- næmi má líka lækna þær af ofnæmi með DNA bóluefni. Ekki er vfst að sú verði raunin með hestana. Enda þótt sumarexemið sé ofnæmi af gerð I í byrjun þá gæti það breyst yfir í ofnærni af gerð IV þegar það verður viðvarandi (kroniskt), en of- næmi af gerð IV eru viðbrögð á Th 1 braut. Ef þetta er raunin, þá er lækning á exeminu ekki raunhæf með þessari aðferð, aðeins verður þá hægt að nota bólusetninguna sem forvörn. Aætlað er að rann- saka meingerð sumarexemsins í samvinnu við Einar Jörundsson dýralækni og húðmeinafræðing á Keldum. HSA líkanið verður not- að til að koma upp aðferðafræðinni og síðan verða fengin vefjasýni úr hestum með sumarexem og athug- að nákvæmlega hvaða boðefni eru framleidd í exemútbrotum á mis- munandi stigum sjúkdómsins, en því hefur ekki verið lýst áður. Það er von þeirra sem að þessari rannsókn standa að hægt verði að þróa bóluefni sem ver hesta gegn sumarexemi. Ef þetta tekst, mun það ekki einungis verða ómetanlegt í baráttunni við þennan sjúkdóm heldur einnig undirstaða fyrir aðrar DNA bólusetningar í hestum. En hætta er á að æ fleiri smitsjúk- dómar, sem nauðsynlegt reynist að bólusetja gegn, eigi eftir að berast í íslenska hesta. í sambandi við sum- arexemsverkefnið verða þróuð og sett upp á Keldum flest undirstöðu ónæmispróf fyrir hesta en þau eru grundvöllur frekari rannsókna á ónæmiskerfi hrossa og viðbrögð- um þeirra við smitsjúkdómum. Heimildir Babiuk, L.A. Babiuk, S.L., Loehr, B.I., van Drunnen Littel van den Hurk, S. (2000) Nucleic acid vaccines: re- search tool or commercial reality. Vet. Immunol. Immunopathol. 76, 1-23. Broström, H. and Larsson, Á., (1987) Allergic dermatitis (sweet itch) of Icelandic horses in Sweden: An epi- demiological study. Equine Vet. J. 19, 229-236. Halldórsdóttir, S. and Larsen, H.J., (1991) An epidemiological study of summer eczema in Icelandic horses in Norway. Equine Vet. J. 23, 296-299. Marti, E., Urwyler, A., Neuen- schwander, M., Eicher, R., Meier, D., de Weck, A.L., Gerber, H., Lazary, S., and Dahinden, C.A. (1999) Sulfidoleu- kotriene generation from peripheral blood leukocytes of horses affected with insect bite dermal hypersensitiv- ity. Vet. Immunol. Immunopathol. 71, 307-320. Mosmann, T.R., and Sad, S. (1996) The expanding universe of T-cell sub- sets: Thl, Th2 and more. Immunol. To- day 17, 138-146. Nilsen K. Kompendium i intern medicin, A/S Carl Fr. Mortensen Köb- enhavn. 2, 332-333. Romagnani, S. (1990) Regulation and deregulation of human IgE synth- esis. Immunol. Today. 11, 316-321. Spiegelberg, H.L., Tighe, H„ Rom- an, M., Broide,D„ Raz E. (1998) Inhibition of IgE formation and aller- gic inflammation by allergen gene immunization and by CpG motif immunostimulatory oligodeoxynucleo- tides. Allergy 53:93-97. Tighe, H„ Corr, M„ Roman, M„ and Raz, E. Gene vaccination: plasmid DNA is more than just a blueprint. (1998) Immunol. Today 19, 89-97. 36- FREYR 13-14/2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.