Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 43

Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 43
Gœðastýring í hrossarækt, landvottun Aðdragandi Þegar gerð er grein fyrir land- nýtingarþætti gæðastýringar í hrossarækt er nauðsynlegt að rifja upp aðdraganda málsins. Eftir að framleiðslutakmarkanir voru settar á í sauðfjár- og mjólkurframleiðslu um 1980 fjölgaði hrossum ört í landinu. Bændur reyndu að bæta sér upp tekjumissi vegna minnk- andi framleiðslu mjólkur- og dilka- kjöts með ýmsu móti. M.a. fjölg- uðu þeir hrossum ört og hrossaeign þéttbýlisbúa óx einnig umtalsvert. Árið 1982 voru 53649 hross í land- inu, árið 1990 voru þau 71693 tals- ins og 77330 í árslok 1999. Flest voru þau árið 1986, 80518. Mark- aðir fyrir lífhross reyndust tak- markaðir og fylgdu engan veginn hrossafjölguninni eftir. Hrossa- kjötsneysla dróst saman og kjöt- verð lækkaði jafnframt um 48% til framleiðenda á tímabilinu 1983- 1996. Hrossafjölgunin varð til þess að beitarálag jókst umtalsvert og al- varlegum ofbeitartilfellum fjölg- aði. Notkun rafgirðinga um hrossa- haga varð til þess að auðveldara varð að nauðbeita einstök beitar- hólf og svokölluð geymslu- eða sveltihólf fyrir brúkunarhross urðu algengari. Landgræðsla ríkisins fór að hafa afskipti af fjölgandi ofbeit- artilfellum, hestamenn og landnot- endur gerðu sér ljóst að í óefni stefndi ef ekki kæmi til bætt beitar- menning og aukið landlæsi. Til að fá betri yfirsýn yfir vandann gerði Landgræðslan forkönnun á ástandi hrossahaga á árunum 1995 og '96. Könnunin var gerð í samráði við Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Félag hrossabænda, Landsamband hestamannafélaga, Bændasamtök Islands, Bændaskólann á Hvann- eyri, landbúnaðar- og umhverfis- eftir Bjarna Maronsson, héraðs- fulltrúa hjá Landgræðslu ríkisins ráðuneyti og hlutaðeigandi búnað- arsambönd og sveitarstjórnir. Könnun þessi leiddi í ljós mjög al- varleg ofbeitartilfelli af völdum hrossa, aðallega á Suðurlandi og í Skagafirði, þó að slæm tilfelli fyndust um allt land. Síðan niður- stöður þessar lágu fyrir hefur Félag hrossabænda lagt mikla áherslu á bætta beitarmenningu meðal hrossabænda og stutt Landgræðsl- una í starfi sínu að beitarmálum. Afkoma hrossaræktarinnar hefur verið slæm hin síðari ár og er gæðastýringarferlinu m.a. ætlað að skapa sóknarfæri fyrir þá hrossa- bændur sem stunda þessa búgrein af alúð. Gæðastýringin Fagráð í hrossarækt hefur unnið markvisst að gæðastjórnun í hrossarækt um nokkurt skeið. Einn þáttur þeirrar vinnu hefur beinst að vistvænni nýtingu hrossahaga. Rányrkja beitilands er hvergi ásættanleg við nútíma aðstæður og jafnframt eru gerðar æ meiri kröfur um að uppruni landbúnaðarvara, hverju nafni sem þær nefnast, sé rekjanlegur og þær framleiddar við vistvænar aðstæður. I raun er gæðastýring og gæðavottun fram- leiðslu aðeins staðfesting þess að hlutimir séu í lagi hjá viðkomandi framleiðanda. Það er því fullkom- lega eðlileg krafa þeirra, sem hafa sín mál í lagi, að þeir fái staðfest- ingu á því með formlegum hætti. Fagráðið leitaði til Landgræðslu ríkisins um að þróa vottunarkerfi til staðfestingar á vistvænni landnýt- ingu þeirra hrossaræktenda er þess óska. Fagráðið lagði áherslu á að kerfið þyrfti að vera einfalt, ódýrt og skilvirkt. Jafnframt óskaði fag- ráð eftir því að Landgræðslan sæi um sjálfa vottunina og að landnot- endum yrði gefinn kostur á að fá fyrstu jarðirnar metnar árið 2000. Landgræðslan mótaði því vinnu- reglur til að meta landnýtingu hrossahaga og hélt samhæfingar- námskeið fyrir starfsfólk sitt að Hólum í Hjaltadal dagana 11. og 12. júlí sl. Um leið urðu Hólar fyrsta jörðin sem metin var skv. þessu vottunarkerfi. Alls voru metnar 23. jarðir á árinu 2000 og hlutu flestar vottun. Reglur þær sem Landgræðslan vinnur eftir við landmatið eru að mestu leyti byggðar á rannsóknum Borgþórs Magnússonar, sérfræðings hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins og samstarfsfólks hans, á hrossa- beit. Þessar reglur byggja á sjón- mati á beitarástandi landsins og greinanlegum gróður- og rofein- kennum, þ.e. landlæsi. Reynsla starfsfólks Landgræðslunnar af vottunarstarfínu sýnir að þótt vott- unarreglunar séu nokkuð rúmar, taka þær á beitarvandamálum séu þau fyrir hendi. Landnotendur ættu ekki að hika við að fá land sitt met- ið þótt þeir séu í efa um að land þeirra standist gerðar kröfur. Að matinu loknu kemur í ljós hvað mætti betur fara í landnýtingu á viðkomandi jörð. Standist jörðin ekki landmatið er eitthvað það að varðandi landnýtinguna, sem tví- mælalaust er hagur bóndans að FREYR 13-14/2000-43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.