Freyr - 15.12.2000, Blaðsíða 13
Besti árangur
í kappreiðum sumarið 2000
Undanfarin tvö ár hefur
Freyr birt yfrrlit yfir besta
árangur hesta og knapa í
helstu keppnisgreinum hesta-
mennskunnar. Enn skal haldið af
stað og bilið brúað þar til allar upp-
lýsingamar liggja fyrir í miðlægum
gagnagrunni Landssambands
hestamannafélaga (LH) og/eða
Bændasamtaka Islands.
Samþykkt var á landsþingi LH
að veita fé til að koma upp miðlæg-
um gagnabanka með úrslitum
hestamóta á Islandi og vonandi
verður hægt að hefjast handa við að
safna í bankann strax á næsta ári.
Hér er tekinn saman árangur
knapa og hesta í helstu keppnis-
greinum í forkeppni og úrslitum á
stærstu félags- og stórmótunum á
íslandi á árinu 2000.
Til að fá upplýsingar um úrslit
móta í sumar var leitað til for-
manna stærstu hestamannafélag-
anna á íslandi og gekk það ágæt-
lega að mestu leyti. Töluverð aukn-
ing er milli ára á aðgengi gagna í
tölvutæku formi og lofar það góðu
fyrir upplýsingaöflun næstu ára.
Á landsmótsárum eru fleiri hross
í þjálfun en önnur ár. Landsmótsár-
ið 2000 er þar engin undantekning.
Hugsanlega hafa aldrei verið fleiri
hross á jámum á sama tíma á Is-
landi eins og í ár.
Árangur endurspeglar oft þjálf-
unina, vinnuna sem liggur að baki.
Einkunnir margra hrossa voru stór-
góðar, ekki eingöngu í kynbóta-
dómi heldur og í gæðinga- og
íþróttakeppni og einnig í sumum
greina kappreiðanna.
A-flokkur gæöinga
í A og B flokki gæðinga fengu
hæst dæmdu hrossin einkunnir
töluvert yfir 9,20 og í 150 metra
skeiði settu Þormóður rammi og
Logi Laxdal nýtt íslandsmet, 13,64
sek., og bættu Islandsmet Leifturs
frá Keldudal og Aðalsteins Aðal-
steinssonar frá árinu 1986 en metið
var 13,8 sek.
Margir knapar og eigendur
hrossa biðu spenntir eftir lands-
mótinu, sem haldið var í Reykjavík
í júlí. Haldnar voru úrtökur fyrir
landsmótið víða um land og voru
upplýsingar um einkunnir þeirra
hrossa sem efnilegust þóttu fljótar
að berast milli manna. Hrossakost-
ur landsmótsins var með því besta
sem sést hefur. Ormur frá Dallandi
vakti mikla athygli á landsmótinu á
Melgerðismelum 1998 og var tal-
inn líklegur til afreka á landsmót-
inu í Reykjavík. Hann brást ekki
aðdáendum sínum og fékk lang-
hæstu einkunn A-flokks hests 9,21,
stóð efstur og um leið fékk hann
hæstu A-flokks einkunn hests á ár-
inu 2000. Knapi var Atli Guð-
mundsson. Þetta er annað árið í röð
sem Ormur er með hæstu einkunn-
ina í A-flokki. Klakkur frá Búlandi
og Vignir Jónasson eru með næst-
hæstu einkunnina, 9,08, sem
Klakkur fékk á landsmótinu, en
þess má geta að Vignir varð Is-
landsmeistari í fimmgangi á Klakki
síðar um sumarið. Ormur og
Klakkur eru einnig með þriðju og
fjórðu hæstu einkunnir ársins.
A-flokks hross fengu hærri eink-
unn en 8,70 á fimmtán mótum,
nokkur hross oftar en einu sinni.
Þess má geta að ekkert hross fékk
hærri aðaleinkunn en 9,00 í gæð-
ingakeppni á árunum 1998 og
1999.
A flokkur. Ormurfrá Dallandi og Atli Guðmundsson fengu hæstu einkunn í
A-flokki. (Ljósm. EJ.).
FREYR 13-14/2000 - 13