Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 2

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 2
Ný von fyrir Afrfku Á fundi í borginni Bamako í Malí i Afríku í mars sl. sam- þykktu samtök bænda í 15 lönd- um Afríku yfirlýsingu sem hvetur til nýrrar “grænnar byltingar’’ í löndunum. Umrædd samtök bænda í þessum löndum er samstarfshópur innan Alþjóða- samtaka búvöruframleiðenda, IFAP. Takmarkið er að á næstu 10 árum verði dregið úr hungurs- neyð sem ríkir í þessum löndum, uppsprettu fátæktar og vansæld- ar - og tryggt sjálfbært öryggi í matvælaöflun í álfunni. Landbúnaður er undirstöðuat- vinnuvegur í framþróun álfunnar og afrískir bændur krefjast þess að landbúnaður njóti forgangs jafnt í innanríkismálum landanna sem og í milliríkja samstarfi þeir- ra og samskiptum við fjármála- stofnanir. Fundurinn skoraði á ríkisstjórn- ir landa sinna og hlutaðeigandi stofnanir Sameinuðu þjóðanna, FAO o.fl., og Alþjóðabankann að vinna að eftirtöldum verkefnum: * Áætlun fyrir konur í landbún- aði um aukinn hlut þeirra í rekstrinum. * Aukinni heilsuvernd fólks i dreifbýli hvað varðar baráttu gegn eyðni, malaríu og öðrum sjúkdómum. * Innri uppbyggingu landanna, einkum hvað varðar sam- göngur, neysluvatnsöflun og frárennslismál. * Öflun rekstrarvara til landbún- aðar. * Rannsóknum, leiðbeiningum og upplýsingamálum landbún- aðarins. * Markaðsfærsla, gæðaeftirliti og úrvinnslu búvara. Afrískir bændur hvetja í yfirlýs- ingu sinni til eftirfarandi aðgerða: * Verulegur hluti af tjármunum landanna verði varið til þróun- arverkefna í landbúnaði. * Stefnt verði að alþjóðlegu samkomulagi um að lönd verji 0,7% af þjóðartekjum sinum til þróunarhjálpar. * Fjármálastofnanir, svo sem Al- þjóðabankinn, leggi meira af mörkum til uppbyggingar í landbúnaði. * Styrking samstarfs landbúnað- arstofnana og samtaka milli landa og annarra valdaaðila svo sem ríkisstjórna og fjár- málastofnana. * Leiðrétting á ójafnvægi í al- þjóðlegum viðskiptum, til hagsbóta fyrir þróunarlönd. * Varðveita ræktunarland, að- gang að vatni, erfðaauðlindir og aðrar auðlindir náttúrunnar. Til að ná þessum markmiðum er jafnframt nauðsynlegt að auka menntun og fæmi þeirra sem stunda landbúnað og starfa hjá samtökum þeirra og stofnunum. Einnig er brýnt að breyta viðhorfum til bænda og viðurkenna mikilvægt hlutverk þeirra við að tryggja mat- vælaöryggi í landbúnaði í álfunni. Formaður starfshóps um þró- unarmál innan Alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda er Carolina Trapp, formaður sænsku bænda- samtakanna LRF. Hún lýsti fram- angreindum fundi í Bamako sem mikilvægu skrefi fyrir samtök bænda í Afríku en samkomulag náðist um hvað þurfi til, til að bæta matvælaöryggi í álfunni. Þess má geta að Alþjóðasam- band búvöruframleiðenda, Inter- national Federation af Agricultural Producers, IFAP, er samband bændasamtaka í meira en 70 löndum þar sem starfa yfir 500 milljón bændur og fjölskyldur þeirra sem og um 100 annarra samtaka bænda. Starfshópur samtakanna um þróunarmál, Dev- elopment Coopartion Committee, DCC, var stofnaður árið 1998. (Internationella Perspektiv nr. 13/2003). Altalað á kaffistofunni Fjórtánfætla Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á Tjörn í Svarfaðar- dal og um skeið formaður Búnaðarfélags Islands, orti eftirfarandi vísu um tæknivæðingu búskapar síns eft- ir að börn hans voru farin að taka þar til hendinni. Þeir brjóta sig í mola og tœta sig í tætliir og tœkin dýru kaupa ut um allar heimsins álfur. En Hjörtur bóndi á Tjörn notar eina jjórtánfætlu til flestra verka á bænum. Hann smíðaði hana sjálfur. 12 - Freyr 5/2003

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.