Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 31

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 31
Vothey í plastklæddum útistæðum Inngangur Heyöflun er mikilvæg undirstaða hefðbundinnar ffamleiðslu búfjár- afiirða og skiptir miklu að vel sé fylgst með nýtingu vinnu, aðfanga og tilkostnaðar við hana. Ymsir hafa áhyggjur af plastnotkun við baggaheyskap, ekki síst í ljósi væntanlegra reglna um skilagjald á plastumbúðir. Með stækkandi bú- um, einkum kúabúum, verða rúll- umar eða ferbaggamir margir sem meðhöndla þarf á viku hverri. Kann þetta tvennt að vera ástæða til þess að endurmeta vinnubrögð og aðferðir við heyöflunina. Hér verður greint frá athugun, sem gerð var að Helgavatni í Þverárhlíð sumarið 2002, en hún er hluti stærra verkefnis um kostn- að við fóðuröflun, sem unnið er að á Hvanneyri. Tilgangur athugun- arinnar á Helgavatni var að: * að mæla vinnu og afköst við heyöflunina * að meta verkun heysins og nýt- ingu * að fá hugmynd um vinnu við gjafir úr stæðunni * að bera aðferðina saman við aðrar heyöflunaraðferðir. Tilhögun gagnasöfnunar Gagna var aflað með heimsókn- um að Helgavatni þar sem að- stæður vom metnar, heysýni tek- in, heymagn mælt og fylgst með verkum. Skráningu á vinnutíma og ýmsum öðrum stærðum önn- uðust bændur að mestu sjálfir. Skrifarinn vann úr gögnum og stillti þeim saman í samráði við Helgavatnsbændur, þá Pétur og Vilhjálm Diðrikssyni. Athugun var gerð á hirðingu og verkun heys í tveimur útistæðum. í þeirri fyrri var fyrri sláttar hey ætlað geldneytum; mest vallar- sveifgras, snarrótarpunturog vall- arfoxgras sem var rétt að byrja skrið. Fyrri stæðan vargerð 10. og 11. júli. 1 þeirri síðari var hreint rýgresi (grænfóður), slegið 15. ág- úst en hirt 18. ágúst. Maurasýru (Prestorp) var blandað í hvort tveggja heyið, nálægt 3 1 í tonn. Verklag við heyskap var þannig að slegið var með sláttuvél með áföstum „knosara“. Þegar slætti var lokið hófst múgun en á þeim tíma hafði visnað nokkuð úr hey- inu. Ur görðum var heyið hirt með eftir Bjarna Guðmundsson, Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri ljölhnífavagni (33 hnífar). Vagn- inn hraðlosaði á steypta stétt heima við hlöðu þar sem stæðum- ar vom settar. Stæðum var þannig komið fýrir að á þétt og slétt hlað var lagt gamalt plast (yfirbreiðsla stæðu 1. mynd: Heykvísl með vökvastýrðu baki (spjaldi) er notuð til þess að bera upp I stæðuna og jafna heyinu í hana. Dráttarvélin þjappar heyinu saman um leið. Freyr 5/2003 - 31 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.