Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 34

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 34
verkun heys í rúllum gerir stakk- aðferðin skýlausa kröfú um fulln- aðarfrágang heysins í einni lotu. Ella geta fóðurskemmdir orðið. Rúllur, komnar í plasthjúp, þola örlitla bið áður en þær eru fluttar heim - þó ekki langa. A álagstim- um og í afmörkuðu tíðarfari getur þessi eðlismunur hins vegar orðið nokkurra peninga virði þegar mik- ilvæg verk kalla að. Heimakstur rúllnanna nam ríflega þriðjungi vinnutímans samkvæmt könnun- inni frá 1996. Hvað plastkostnaðinn snertir var hann fast að helmingi minni, reiknaður á sama magn þurrefnis, í stæðunum á Helgavatni en í al- gengum heyrúllum. Eðli máls samkvæmt skiptir hér miklu hver- su yfírborð stakks/rúllu er stórt Molar Stefna Finna í málefn- UM LANDBÚNAÐAR Þingkosningar voru i Finn- landi fyrr á árinu og í kjölfar þess mynduð ríkisstjórn Mið- flokks, jafnaðarmanna og fleiri flokka. í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar segir svo um land- búnað: * Ríkisstjórnin hefur það að markmiði að varðveita þrótt landsbyggðarinnar á sjálfbær- an hátt. í þvi skyni tryggir rik- isstjórnin greiðslugetu fjöl- skyldubúsins, sem og skóg- ræktar og annarra atvinnu- greina í dreifbýli. * Finnland stefnir að því að hafa áhrif á endurskoðun styrkjakerfis landbúnaðarins innan ESB á þá lund aðjafna aðstöðu svæða með ólík nátt- úruleg skilyrði innan sam- bandsins. Finnland keppir að því að eftir endurskoðunina verði heildarstuðningur við miðað við innihaldið. Þama stuðl- ar góð þjöppun heysins, hvort heldur er í stæðum eða rúllum, mjög að hagstæðri nýtingu plasts- ins og útgjalda við það. Við stæð- urnar tvær á Helgavatni nam plastkostnaðurinn einn og sér 9- 13% af breytilegum kostnaði við heyöflunina. Frávik í plastverði ríða því ekki „baggamun“ þegar horft er til heildarframleiðslu- verðs heysins - en um allt munar þegar heymagnið er mikið. Nýting fóðursins úr stökkunum virtist óaðfínnanleg. Engu fóðri var hent og allt fullnægði það gæðakröfum þeirra gripa sem á því voru fóðraðir. Aðferðin er því sam- bærileg við verkun heys í rúllum þegar vandlega er staðið að öllum verkþáttum beggja aðferðanna. Athugunin, sem hér hefur verið sagt frá, skapar ekki grundvöll til alhliða ályktana. Við hana þarf að bæta. Hins vegar getur hún ef til vill hjálpað lesendum við að meta sínar eigin aðstæður, hugleiði þeir að breyta vinnubrögðum við hey- skap sinn og fóðuröflun. Skrifarinn þakkar Helgavatns- bændum liðsinni og lipurð við at- hugun þessa. Þeir eru fúsir að veita áhuga- sömurn lesendum frekari upplýs- ingar um reynslu sína. 11 Daði Már Kristófersson og Bjarni Guðmundsson 1998. Vinna og vélakostnaður við heyskap — athugun á 23 búum. Ráðunautafundur 1998, bls. 20-29. finnskan landbúnað a.m.k. jafn mikill og áður. * Innlendur stuðningur við land- búnað í Finnlandi er lífsnauð- synlegur sem viðbót við stuðning frá ESB. (Internationella Perspektiv nr. 16/2003) Íbúar ESB andvígir ERFÐABREYTTUM MAT- VÆLUM ESB hefur í fimmta sinn kann- að hug íbúa sambandsins til erfðabreyttra matvæla. Niður- staðan er sú að meirihluti þeirra er á móti því að nota erfðabætt hráefni í matvæli. í rannsókninni var annars veg- ar könnuð afstaða til erfðatækn- innar almennt og hins vegar til erfðabreyttra matvæla. Svörin sýndu afgerandi mun á þessu tvennu, þannig að afstaðan var jákvæð gagnvart notkun á erfða- tækni í lækningaskyni og til lyfjagerðar en neikvæð til mat- vælaframleiðslu. Spurðir voru 16.500 manns eða rúmlega 1.100 að meðaltali í hverju aöildarlandi sambandsins. (Norsk Landbruk nr. 7/2003). Banvænt mýbit í fyrsta sinn I sögunni hefur það gerst að mýflugur drepi búfé I Evrópu. Það gerðist á sl. ári en þýskur bóndi missti þannig fimm kýr. í ár hefur það einnig gerst að fjórar kýr drápust eftir mýbit á býli i Suður-Týról í Ítalíu, en í öll- um tilfellum blæddi kúnum út eft- ir stórfellt bit. Ástæða þessa er rakin til hinna miklu flóða sem urðu á meginlandi Evrópu á sl. ári. Mikil skordýraplága fylgdi í kjölfarið og þar á meðal komu fram stökk- breyttar mýflugur sem eru ónæmar gegn skordýraeitri. (Bondebaldet nr. 20/2003). | 34 - Freyr 5/2003

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.