Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 21

Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 21
____._______________________:______________iít Mikill vöxtur er i skógrækt hér á landi um þessar mundir. Skóg má rækta viða þar sem land hentar ekki til akuryrkju. Myndin er frá Fossá í Hvalfirði. (Ljósm. Áskell Þórisson). óhreyfðra mýra og um vemdun fornminja skv. þjóðminjalögum nr. 107/2001. Einnig er lögð áhersla á að vemda náttúrufyrir- bæri í landslaginu, eins og fossa og gil. Að öðm leyti er val á landi til skógræktar háð vilja landeig- enda. Þar sem skógræktin er flokkuð sem landbúnaður ná skipulags- og jarðalög ekki til hennar. Lagalega séð getur því ekkert komið í veg fyrir að rækt- að land eða ræktanlegt verði lagt undir skóg. Loks má svo nefna að víða hef- ur verðmætt ræktunarland horfið undir vegi og flugvelli. Allar slík- ar framkvæmdir verða að vísu að fara í umhverfísmat en þar virðast ekki vera fyrir hendi ákvæði sem hindra framkvæmdaaðila í að fara þvert yfír tún og akra. Mörg dæmi em um að Vegagerðin hafir kosið að leggja veg hom í hom á vönduðu ræktunarlandi, þótt lítils- háttar krókur hefði getað fírrt skemmdum. Athyglisvert við skipulags- og jarðalög er að flokkar landbúnað- arlands em aðeins tveir, það er ræktað land og svo annað land- búnaðarland. I síðari flokkinn falla, án þess að munur sé á gerð- ur, grjótásar, háijöll, eyðisandar og besta ræktunarland. Markaðsverð lands Eins og ráða má af framansögðu em lagaákvæði lítt notuð til þess að takmarka landnotkun hérlend- is. Verð ræðst því að mestu af framboði og eftirspum. Samt er erfítt að gera sér grein fyrir verð- gildi lands sem ætlað er til land- búnaðar. Bújarðir em oftast seld- ar í einu lagi, þannig að saman fara byggingar, land og jafnvel framleiðsluréttur og gæði lands ekki sérstaklega metin. Einnig mun vera afar fátítt að landspild- ur séu seldar milli jarða sem rækt- unarland. Þegar opinberir aðilar meta jarðir, til dæmis við leigulok, er ræktun metin eftir ræktunarkostn- aði en verðmætamat byggt á eftir- spum kemur þar ekki við sögu. Allt óræktað land er virt sem beitiland og oftast til fárra físka metið. Vegagerðin greiðir eina upphæð fyrir flatareiningu af ræktuðu landi, sem fer undir veg, og aðra fyrir óræktað land, allt án tillits til landgæða eða staðar. í hvomgu tilvikinu er hægt að tala um verðmyndun á landbúnaðar- landi. Landspildur, sem boðnar em til sölu, seljast því jafhan sem sum- arbústaðaland eða eitthvert ígildi þess. Þéttbýlisbúar sækjast líka eftir heilum jörðum, til dæmis undir hross eða skógrækt. Heim- ildir um verð lands á þessum markaði em samt hvergi aðgengi- legar. Fasteignamat ríkisins hefúr til dæmis ekki safnað upplýsing- um um landverð. Þeir, sem til þekkja, fúllyrða þó að gangverð á landi til frístundanotkunar sé margfalt hærra en landbúnaður getur greitt að óbreyttu. I samræmi við þetta má hafa fyr- ir satt að verð á landi ráðist framar öðm af afstöðu þess til þéttbýlis. Þar sem land er dýrast lætur hefð- bundinn landbúnaður undan síga. Áhrif þessa sjást til dæmis í vest- anverðri Ámessýslu í hæfilegri íjarlægð frá Reykjavík. Þar hefúr búskapur dregist saman hin síðari ár og margar jarðir komist í eigu þéttbýlisbúa. Sömu sögu er að segja úr nágrenni Akureyrar. Horft til framtíðar Allt bendir til að eignarhald á ræktunarlandi og niðurskipan þess muni breytast verulega á allra næstu áram. Hætta er á að þær breytingar verði óafturkræfar og landið verði tekið úr fram- leiðslu um alla framtíð. Tími er kominn til að spyma við fótum og reyna að hafa áhrif á þróunina. Fyrst og fremst þarf að meta allt land eftir gagnsemi þess til rækt- unar. Ræktanlegt land eða með öðmm orðum land, sem hentar til akuryrkju, þarf að skrá. Síðan þarf að skilgreina það í lögum. Þar með væri kominn gmnnur að skipulagðri landnýtingu. Nú þeg- ar eru í gildi lagaákvæði, sem gefa hinu opinbera færi á að stjóma landnotkun og jafnvel taka fram Freyr 5/2003 - 21 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.