Freyr - 01.06.2003, Blaðsíða 17
Samkvæmt framansögðu má
vera ljóst að búsetuskilyrði á
landsbyggðinni, atvinnumál,
menntamál, heilbrigðismál og
samgöngur eru mun lakari í hin-
um dreifðu byggðum landsins en
á höfuðborgarsvæðinu og stærstu
þéttbýliskjömum landsins.
Félagsleg staða kvenna
í DREIFBÝLI Á
Nordurlandi VESTRA
Lítum nú aðeins á það sem kon-
ur í dreifbýli á Norðurlandi vestra
höfðu að segja um félagslega- og
atvinnulega stöðu sina og ffamtíð-
arsýn þeirra haustið 1998. Könn-
unin náði til allra kvenna á aldrin-
um 18-70 ára á svæðinu og svör-
uðu 395 konur spumingalistanum
eða 75,1% þýðisins.
í langflestum tilfellum telja
konumar tekjur heimilisins ekki
nægar til þess að framfleyta fjöl-
skyldunni eða í 65% tilvika. Þetta
á aðallega við um þau heimili sem
stunda sauðfjárrækt.
Vinnuframlag kvennanna er
mjög mikið við búreksturinn, auk
þess sem rúmlega helmingur
kvennanna eða 53% stundar aðra
atvinnu samhliða búskapnum.
Tæplega helmingur makanna 47%
stundar vinnu með búskapnum.
Tæplega tuttugu prósent kvenn-
anna, sem vinna utan bús, segjast
ekki hafa áhuga á því en gera það
samt þar sem tekjur heimilisins
nægja þeim ekki til framfærslu.
Þegar spurt var um hvaða vinnu
konurnar ynnu svöruðu flestar
kvennanna þjónustustörf, en slík
störf hjá hinu opinbera skám sig
verulega úr, 72 konur nefna opin-
bera þjónustu og eru þær aðallega
starfandi í skólum sem kennarar,
matráðskonur eða við ræstingar.
32 konur nefna önnur þjónustu-
störf og er þá um að ræða störf
eins og heimilishjálp, ráðskonur
og við ræstingar. Þama kemur
glögglega fram mikilvægi opin-
Mynd 1. Úr könnun á félagslegri og atvinnulegri stöóu kvenna á Norðurlandi
vestra árið 1998. Svör við spurningunni: Hvaða aðra atvinnu stundar þú.
Fjöldi svara eftir atvinnugreinum.
Hvers vegna tekur skipulagið ekki mið af aðstæðum barna í sveitum?
Fjöldi
50
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
-AZ
7 8
LL -I I í J
(/) O)
JnE
S?! V,
1 i 1
o ro -o
.£ E
o -S
5 t
j2 <3
<D *3 — t
3 2 = SS
Ji £1 s
— O .n -*
Astæður fyrir að skipulag grunnskólans tekur ekki mið af aðstæðum barna í
sveitum.
Hverjar eru aðstæður unglinga á þínu heimili til aö afla sér
framhaldsmenntunar
Skagafjarðars.
V-Húnavatnss.
A-Húnavatnss.
185
63
91
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100%
■ Mjöggóðar BGóðar nSlæmar DMjögslæmar
Aðstæður barna til framhaldsmenntunar skipt eftir búsetu.
Freyr 5/2003 - 17 |