Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2003, Page 39

Freyr - 01.06.2003, Page 39
að fylgja skráning uppskeru hverrar túnspildu. í flestum tilvikum mætti líklega komast nærri hinu “sanna” með notkun reiknilíkans þess sem Ing- var Bjömsson (2000a) notaði, en það er norskt að uppruna (0yvind Hansen 1997). I því felst að innri og ytri kostnaðarliðum, föstum og breytilegum, er skipt á “búgreinar”. Það verður ekki nákvæmt nema með traustu bakgmnnsbókhaldi en í flestum tilfellum munu bændur geta greint nægilega vel á milli þannig að bærileg nálgun náist. Gróffóðuröflunin er svo stór lið- ur í rekstrarkostnaði allra búa að óviðunandi er að hafa engar raun- tölur til að styðjast við. Það á jafnt við um tilkostnað og afrakstur. Heimildir: Asdís B. Geirdal og Ingibjörg Sig- urðardóttir 2002. Niðurstöður úr vinnuskýrslum 2001. Rit Hagþjónustu landbúnaðarins nr. 2:2002, 48-59. Hagþjónusta landbúnaðarins 2002a. Niðurstöður búreikninga 2001. 112 síður. Hagþjónusta landbúnaðarins 2002b. Aætlaður beinn kostnaður við heyframleiðslu sumarið 2002. http://www.hag.is/01 heykostnad- ur2002.pdf Ingvar Bjömsson 2000a. Er heyið þitt dýrara en kjamfóður? Freyr, 96,12-14. Ingvar Bjömsson 2000b. Hagkvæm gróffóðurframleiðsla á kúabúum. Ráðunautafúndur 2000, 330-337. Ingvar Bjömsson 2001. Gróffóður á kúabúum. Rit búvísindadeildar nr. 25, 40 bls. Þóroddur Sveinsson og Laufey Bjamadóttir 1999. Samanburður á al- íslenskum, Angusxíslenskum og Limósínxíslenskum nautgripum. I - At, vöxtur og fóðumýting. Ráðu- nautafúndur 2000, 179-195. 0yvind Hansen 1997. Norden, 15 1997. (Greinin er að stofni til erindi frá Ráðunautafundi 2003). Molar Lúpína í fiskafóður Norska fyrirtækið Skretting, sem framleiðir fóður til fiskeldis, er farið að nota prótein úr lúpínu til fóðurgerðarinnar. Auk þess sem próteinið hentar vel i þessu skyni þá er það ódýrt miðað við hliðstæð efni á markaðnum. Lúpína er ræktuð í sáð^kipt- um víða um heim til að auka frjósemi jarðvegsins, en jurtin safnar köfnunarefni úr loftinu með aðstoð gerla. Prótein í fiskafóður er þannig viðbótar hagnaður af ræktuninni, að sögu Anita Viga framleiðslustjóra hjá Skretting. Hún tekur einnig fram að lúpínan sé ekki erfðabreytt, sem er kostur umfram ýmsa aðra próteingjafa á markaðnum. Rannsóknir, sem fyrirtækið hefur látið gera, sýna að nota má allt að 25% af lúpínu í laxa- fóður, en það er blómskipan jurt- arinnar ásamt fræi sem notuð er í þessu skyni. Það dregur úr notkun á fiskimjöli sem meiri eftirspurn er eftir en unnt er að anna. (Pá Mærkanten, útgefandi Skretting, nr. 2/2003). Lengsta HAF TRÉBRÚAR í HEIMI í febrúar sl. var reist í Flisa á Heiðmörk í Noregi trébrú með lengsta haf sem vitað er um eða 181,5 m. Brúin er með tvær ak- brautir, auk göngubrautar. Það er fyrirtækið Moelven Limtre AS sem framleiddi til límtrésbitana en Vegproduksjon AS sem setti hana upp. Límtré hefur á síðari árum sótt mjög á sem burðarvirki í bygg- ingar og stendur öðrum efnum á sporði um burðarþol og endingu. (Norsk Landbruk nr. 7/2003). Leiflrétting Kynbótamat fyrir endingu mjólkurkúa í síðasta blaði, nr. 4/2003, í 1 ekki rétt. Rétt mynd fylgir hér greininni „Kynbótamat fyrir end- með. Blaðið biðst velvirðingar á ingu mjólkurkúa” eftir Baldur H. þessum mistökum. Benjamínsson, á bls. 30, er mynd Ritstj. Ending íslenskra mjólkurkúa 1990-2002 Förgunarár Mynd 1. Ending íslenskra mjólkurkúa 1990-2002. Freyr 5/2003 - 39 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.