Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1967, Page 8

Skátablaðið - 01.12.1967, Page 8
Varla jólasaga Tvö dönsk börn búa um tíma í ítölsku Ölpunum, þar sem móöir þeirra er að ná sér eftir alvar- legan sjúkdóm. Faðir þeirra hefur mikið að gera, og þarf að hafa næði. Á aðfangadag jóla fara börnin til næsta þorps til að kaupa skraut á jólatréð, en þau lenda í stórhríð og leita skjóls hjá fjárhirði nokkrum og sagan tekur óvænta stefnu. eftir HNNE HOLM "■■akob sneri baki við hinum. Hann ** stóS við gluggann og horfði út. Gluggi, það var nú varla hægt að kalla þessa holu í múrvegginn, með glerrúðu íyrir öðrum endanum, glugga. Glerið passaði ekki einu sinni í gatið. Hvorki að ofan né til hliðanna. í vinstra horninu að neðan var gat, þar tróð maður bara tusku. Hann stóð og horfði út í myrkrið. Snjómuggan gerði sitt til að úti væri dimmara en allt, sem dimmt var. Hann beit á vörina, beit fast á vörina.......hann var of gamall :il að skæla, að minnsta kosti ekki í annarra augsýn. Það var þá ekki einu sinni hættu- legt að vera hérna; ef það hefði bara verið hættulegt, rétt eins og í venju- legum jólasögum, þar sem menn eru nærri komnir að dauða, en er svo bjargað á síðustu stundu. En staðurinn bauð alls ekki uppá neitt hættulegt, eða hetjulegt, bara alls ekkert. Allt var satt að segja ónýtt og hann hafði hlakkað svo mik- ið til. Það hafði aldeilis verið gaman að fá pabba og mömmu með i svona ævintýri, en svo var þetta bara ekkert. „Við fáum eitthvað gott að borða, svo förum við í miðnæturmessu Þið eruð nú orðin svo stór, að þið getið glaðst yfir öðru um jólin, held- ur en bara jólapappír og gjöfum .. . .“ Þetta hafði mamma sagt. Þau höfðu valið réttu stundirnar til þess að suða í foreldrum sínum og beðið um lítið í einu. Pabbi sagði, að mamma væri þreytt og þyrfti hvíldar við, þar sem aðeins réttir íveir mán- uðir voru liðnir írá því, að hún var dauðveik. Maður átti ekki rétt á að eiga börn, úr því að maður gat ekki haldið þeim jól ... Því höfðu þau smám saman feng- ið loforð eitt og síðan annað . . . . jú, það var sannarlega mikilvægt að ná í jólatré. Og það var nú varla hægt að finna, að það væru jól, ef jólagjafir vantaði, svo þau áttu að fá tvær hvort. Hann og Mikaela höfðu veðjað um, að það yrðu minnst fjórar jóla- gjafir handa hvoru þeirra, því eng- 104 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.