Skátablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 49
YLFINGA OG LJOSALFAMOT
í Hafnaríirdi 23. september 1967
JJinn 2379. anno 1967, var haldið
sameiginlegt mót Ijósálfa og
ylfinga, í Hafnarfirði.
Mótið sóttu um það bil 150 Ijós-
álfar og ylfingar frá suðvesturlandi.
Mótið hófst með guðsþjónustu, sem
séra Ásgeir Ingibergsson hélt. Þá
voru leiktækin opnuð og kvikmynda-
sýning hófst. Leiktækin voru margs-
konar að gerð. Einna vinsælast var
GOLFBRAUTIN. Þar fengu þátttak-
endur krikketkylfu og golfkúlu, eins
og sjá má á mynd. Síðan átti að slá
kúluna gegnum boga og spjöld og
einnig átti að slá kúluna í gegnum
dekk. Sýning mikil var í tjaldi einu
og mátti þar sjá sterka manninn, sem
lyfti 1000 kílóum eins og ekkert væri,
feitu konunan, sem er svo feit að hún
verður alltaf að sitja og fleira og
fleira.
Klukkan fimm hófst svo varðeldur.
Þar voru sagðar sögur, sungnir
söngvar og sýnd leikrit, einnig var
farið í leiki.
Nokkrir rauðskinnar vígðu eldinn
af mikilli list. Sýnt var með leikriti
hvernig fíllinn fékk ranann og voru
leikmyndir stórkostlegar. Svo kom
prófessor Rattítattí og sýndi nýupp-
fundna vél, sem hann henti litlum
gúmmískó inní og út kom klofstígvél.
Að lokum henti hann dúkku inní og
út kom strákur. Skömmu seinna kom
prófessorinn með aðra uppfinningu,
sem nefndist hárskurðarvélin. Bítili
nokkur var fenginn til að stinga
hausnum inn, og viti menn, hann var
sköllóttur þegar hann fór með haus-
inn út úr vélinni. Daginn eftir var
staðurinn opinn fyrir almenning og
kostaði 10 krónur inn. Var þá all hið
sama nema messunni og varðeldin-
um var sleppt.
Veður var sæmilegt báða dagana,
en þó frekar kalt íyrri daginn.
ívar S.
SKATABLAÐIÐ
145