Skátablaðið - 01.12.1967, Page 51
Næsta mót var Landnemamótið í
Hækingsdal, en þar eð ekkert móts-
blað var gefið út þar, og mótið var
fámennt, hef ég engar spurnir haft
Þá snúum við okkur að síðasta
mótinu, þ. e. Birkibeinamótinu 18.—
20. ágúst í Tungufellsdal. Á því var
sami sundmótsbragur og flestum
öðrum mótum sumarsins. Ljósasti
punkturinn við mótið var mótsblaðið
,,Peran“, sem var borin út með
flöskuskeytum, en að mínum dómi er
hún vandaðasta mótsblað sumarsins.
Fyrir utan ágætar greinar um um-
hverfið, er þó harla lítið á henni að
græða sem heimild um mótið, frem-
ur en öðrum mótsblöðum.
En þótt við höfum valið hér upp
fimm mót, eru ekki öll kurl komin til
grafar. Að minnsta kosti Vvö innan-
deildamót voru haldin og heppnuðust
vel, þ. e. mót Skjöldunga og Sturl-
unga, þótt mér sé ekki kunnugt um
þau nánar. Finnst mér að meira
mætti gera af því að halda mót, á
takmarkaðri sviðum en almennt ííðk-
ast nú, og hafa stóru mótin þá held-
ur færri og vandaðri.
Og að lokum vil ég vona að þið
eigið eftir að íara á mörg skemmtileg
mót í framtíðinni, og rifja þá kannski
upp minningarnar um þau gömlu bet-
ur en tekizt hefur í þessari grein.
J. Á. F.
kelsdóttur K.S.F.V., og kann ég henni
þakkir fyrir.
Mótið stóð yfir 7.—9. júlí og var
fjölsótt, eða um 400 manns, skátar
frá Norður- og Austurlandi, en drótt-
skátar af öllu landinu. Einnig voru á
mótinu ívær danskar stúlkur og sex
norskir drengir.
Mótsstjóri var Dúi Björnsson og
aðrir í mótsstjórn: Hrefna Hjálmars-
dóttir dagskrárstjóri, Gunnar Helga-
son yfirtjaldbúðastjóri, Dóra Bern-
harðsdóttir gjaldkeri og Valgerður
Valdimarsdóttir ritari.^/
Þótt Norðanmenn hrósi veðurguð-
um sínum oftast mjög, var annað uppi /
á teningnum í þetta sinn, en enginn er
verri þótt hann vökni, og sýnir það
glöggt, hve vel mótið var skipulagt,
að ekkert gekk úr skorðum, þótt veð-
ur væri óhagstætt. Kvöldvakan var
haldin í hóteli skógarins, þar eð ialiij.
var óvíst að allir hefðu úthald til að
halda sér á floti utan húss, meðan
hún stæði yfir. Var skátahöfðingi þar
viðstaddur, og sæmdi hann skógar-
vörðinn borgaraliljunni.
En enginn ræðursínum næturstað,
og þótt allir hefðu verið af vilja gerð-
ir, hefðu fæstir fest blund í gegn-
blautum tjöldunum, svo það var iekið
til bragðs að hýsa kvenskátana í
starfsmannabústaðnum, en drengina
í stóru tjaldi, þar sem ekki mun hafa
rignt alveg eins mikið.
Af nýjungum á þessu móti, má
helzt nefna útvarpsstöðina „Karó-
línu“. Þótt hugmyndin sé ekki alveg
ný, veit ég ekki til að hún hafi verið
framkvæmd áður. Útvarpað var morg-
unleikfimi, óskalögum og fréttum ým-
iss konar. Naut stöðin mikilla vin-
sælda, einkum í fjölskyldubúðunum,
en eins og gefur að skilja er þátt-
taka í dagskrárliðum ekki eins al-
menn þar, og útvarpið því kærkomin
dægradvöl, og jafnframt tengiliður
við dagskrána.
Einnig var gefið út mótsblaðið
„StundvísTV, alls þrjú eintök.
Boinsdal.
SKATABLAÐIÐ
147