Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1967, Page 55

Skátablaðið - 01.12.1967, Page 55
í sætinu, en komst þá að raun um að ég sá alis ekki út, en jórtrarinn (ég meina kennarinn) bætti úr því, með að stinga undir mig nokkrum púðum og að ég held einni eða tveimur bókum. Síðan tók hann til við að útskýra fyrir mér iil hvers all- ir þessir takkar og stangir væru. Mátti heyra þar mörg skrítin nöín svo sem gírar, kúpling o. fl., on mest- an áhuga fékk ég á vinnukonunum, sem mér skildist að ættu að sjá um hreinsun á gluggunum. En hvernig sem ég leitaði, kom ég hvergi auga á þær, aftursætið var tómt, og í framsætinu var aðeins rúm íyrir tvo. Ég hrökk upp úr þessum djúpu hugleiðingum við það að jórtrarinn sagði: „Jæja, góði minn, nú er bíll- inn kominn í gang og nú ekur þú af stað.“ Ég, ég varð skelfingu lostinn, en reyndi þó að bera mig mannalega. Og til þess að hann sæi ekki hversu mjög ég skalf, greip ég dauðahaldi í hjólið fyrir framan mig, þá hafði ég llka örugga handfestu, ef ófreskjan færi af stað. Hún hreyfðist samt sem áður ekkiý mér til mikils léttis. Þá rumdi í kenn- aranum: ,,Hvað er þetta, drengur, ætlarðu að vera hérna í allt kvöld?“ Ég leit undrandi á hann. Hélt hann, að ég réði yfir duttlungum þessarar ófreskju. En eftir margsnúnar og flóknar útskýringar, skyldist mér þó, að ég yrði að lyfta öðrum íætinum til þess að ferlíkið hreyfðist úr stað. Og með hjálp sjötta skilningar- vitsins kom ég að lokum farartækinu af stað, þótt það gengi nú hálf skrykkjótt svona íyrst í stað. Ég man nú ekki mikið, hvað gerð- ist næsta hálftímann, sem þið kannski skiljið. En minnisstæð er mér sú uppgötvun, sem ég gerði um leið og ég fann bremsuna. En þá komst ég að raun um, að það var alls ekki tyggjó, sem minn skilningsríki kenn- ari var sífellt að japla á, heldur ein- hver svört leðja, sem spýttist á fram- rúðuna og rann niður á hana I stríðum straumum. Kom mér þá í hug, að óviturlegt hefði verið af honum að skilja vinnu- konuna eftir heima, — þegar ég minntist á það við hann, hristi hann aðeins höfuðið og hélt áfram að nudda ennið, þar sem kúla, sem minnti einna helzt á Kolviðarhól, var óðum að stækka. Þetta gekk nú slyslaust úr þessu. Ég var þó alltaf reynslunni rikari, þegar ég kom aft- ur heim, og alveg óslasaður, sem mér skildist á kennaranum, vera al- gjört kraftaverk. En það er núna frá mér að segja, að ég ætla mér ekki að gefast upp, þó að ég sé búinn að íaila fimm sinnum á prófinu. Kennarinn segir líka, að hann geri sér bara góðar vonir með mig næst. Og í næsta mánuði verð ég 20 ára, og ég veit, að pabbi stendur við loforð sitt, þó það séu 3 ár síðan hann gaf það. En kæru vinir, ef þið eruð að hugsa um að krækia ykkur í græna spjaldið, ætla ég að ráðleggja ykkur að hugsa ykkur tvisvar um, áður on þið dembið ykkur út I þessi ósköp. Úr villta vestrinu. Skítugur kúreki með tvær byssur ruddist inn í veitingastað bæjarins skaut i allar áttir og öskraði: „Út með með ykkur, ræflarnir ykkar.“ Allir fóru út nema gamall námu- karl, sem sat eftir og drakk bjórinn sinn. „Fullt af þeim hérna, ræílunum, finnst þér ekki?“ sagði karlinn við kúrekann T Kansasbúi var að rífast við Texas- búa: „Heima í Fort Knox er nóg af gulli til þess að gera af girðingu I kringum Texasríki.“ Texasbúinn: ,,OK, þið gerið girð- inguna, og ef okkur lízt á hana, kaup- um við hana.“ ▼ Af hverju eru sköllóttir menn oft skapgóðir? Af því, að enginn getur staðið upp í hárinu á þeim. Ef Alexander mikli hefði verið skáti, hefði hann aldrei farið að skera á Gordíonshnútinn. hvaða leyti er ferð út í guðs- náttúruna svipuð því að líta háaloft? Af því þú rekst þar á alls konar M og óþverra. Púnversku styrjaldirnar. Já, hver kann ekki mannkynssög- una sína? Fyrsta styrjöldin var 14 ár- um lengur en hin þriðja og sú íyrsta 6 árum lengur en önnur. Alls stóðu þær í 45 ár. Hversu lengi stóð hver einstök þeirra yfir? I' -’l [ _.r_... " 'ií'' ] :r‘I í ' ^V \\ > : v.«t ■ í þessari bílasmiðju verður maður að byrja á botninum. SKÁTABLAÐIÐ 151

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.