Skátablaðið - 01.12.1967, Side 58
TIJL HAMIMUU
ÍTLAGAR!
Frækinn §kátaflokkur í fullu §tarfi i 25 ár
La? augardaginn 11. nóvember síðast-
liðinn héldu Útlagar upp á 25 ára
afmæli sitt. Buðu þeir í því tilefni
..‘ stjórn Bandalags íslenzkra skáta
á flokksfund í Snorrabúð Hótel Loftleiða, og
færðu þar þandalaginu stórgjöf, 50.000 kr.
Við sama tækifæri heiðraði Bandalagið flokk-
inn á ýmsan veg. Fengu allir meðlimir viður-
kenningu, en Friðrik Haraldsson, félagsfor-
ingi Kópa í Kópavogi, fékk auk þess Þórs-
hamarinn, og Gísli Guðlaugsson flokksforingi
15 ára lilju.
Skátaflokkurinn Útlagar var stofnaður í
skrifstofu bandalagsins þann 27. okt. 1942.
Að stofnun hans stóðu 10 drengir úr skáta-
félaginu Faxa í Vestmannaeyjum, og nutu
Stjórn Útlaga 1967-68.
Berent Th. Sveinsson, ritari. Gísli Guölaugsson, flokks-
foringi. Arnbjörn Kristinsson, gjaldkeri.
Skátahöfðingi ávarpar Útlaga og gesti þeirra.
þeir fulltingis Þorsteins Einarssonar, íþrótta-
fulltrúa. Fyrsti flokksforinginn var kosinn Frið-
rik Haraldsson, en honum til aðstoðar þriggja
manna stjórn, og í lögum þeirra sagði meðal
annars svo: „Markmið flokksins er að safna
saman öllum Vestmannaeyjaskátum, er dvelj-
ast í Reykjavík um lengri eða skemmri tíma,
efla innbyrðis samstarf og kunningsskap
þeirra, og fá þá til að halda áfram því skáta-
starfi, sem þeir hófu í Faxa.“
Síðan er liðinn aldarfjórðungur, og mikið
vatn hefur runnið til sjávar. Hinir ráðsettu
heimilsfeður eru ekki sömu unglingar og þeir
voru fyrir 25 árum. En eitt hefur ekki breyzt.
Útlagar starfa enn í anda skátahreyfingarinn-
ar. Starf þeirra hefur þróazt með breyttum
heimilisháttum og viðhorfum. Þeir halda enn-
þá fundi hálfsmánaðarlega, og mætingin er
154
SKATAB LAÐIÐ