Skátablaðið - 01.12.1967, Side 62
FLUGPROF
Hér færðu að reyna kunnáttu þína á sögu flugsins
Brautryðjendur flugsins
Allt frá fornöld hafa menn reynt að hefja sig
til flugs. Allan þann tíma hefur undirbúningur
fyrir afrek vorra tíma staðið yfir.
Þessir flugmenn, sem myndirnar sýna,
ásamt flugtækjum sínum, voru brautryðjendur
á sviði flugsins. Nú áttu að reyna að þekkja
þessa flugkappa og flugkost þeirra. Ef flug-
kosturinn er nafnlaus, áttu að segja til um,
hvaðan flugið hófst. Einnig áttu að setja rétta
flugvél hjá hverjum flugmanni (flugmönnum).
1. Þessir tveir menn smíð-
uðu og flugu fyrstu vél-
knúnu flugvélinni 17.
desember 1903.
2. Hann varð fyrstur
Bandaríkjamanna til að
komast á braut um-
hverfis jörðu 20. febrú-
ar 1962. Hann fór þrjá
hringi umhverfis jörðu í
geimskipi sínu.
3. Þrátt fyrir að hann væri
blindur á öðru auga, var
þessi maður fyrstur til
að fljúga einsamall yfir
Norður- og Suðurheim-
skautin.
4. „Örninn einsamli" var
hann nefndur, er hann
árið 1927 fór fyrstur
manna einsamall yfir
Atlantshafið, frá New
York til Parísar.
A
C
D
5. Mikilhæf flugkona. Hún
var fyrsta konan, sem
fór einsömul yfir At-
lantshafið. Hún týndist
yfir Kyrrahafi 1937, er
hún var á leið umhverf-
is jörðina.
E
158
S KATAB LAÐ ID