Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1910, Síða 13

Sameiningin - 01.06.1910, Síða 13
109 eru mínir vegir yðrum vegum, og mínar hugsanir yðrum hugsunum“ (Esaj. 55, 8. 9). Hér komum vér þá að öðru mikilvægu atriði, sem einkennir þjóðarvitund Israels — hugmynd þjóðarinnar um að hún hafi í vörzlum sínum alveg sérstaka opinber- un frá guði, og standi að þessu leyti ein sér meðal allra þjóða heimsins. Þessu þvkir auðsvarað, eins og kunn- ugt er. Þeir, sem álíta öll trúarbrögð jafnt af náttúr- legum toga spunnin, komast oft svo að orði: „Iiver þjóð geymir frá bernskuárum sínurn undrasögur um kraftaverk, opinberanir og goðasýnir; öll trúarbrögð eru næstum því eins að þessu leyti; gyðingleg og kristi- leg trúarbrögð eiga þar sammerkt með öllum liinum.“ En vér viljum leyfa. oss að svara: Þetta er ekki alveg rétt hermt. Það er engin önnur þjóð í heimi, er hafi aðra eins sögu að segja af upptökum trúarbragða sinna — að eins sem sögu, hyggjum vér — eins og Israelsmenn, og ísraelsþjóðinni var full-kunnugt um þennan algjöra frábærleik sögu sinnar. Það úir og grúir af goðsagna- kerfum, sögusögnum og munnmælum, er segja frá sýni- legum návistum goðanna; en reglulega samvaxna sögu- heild, þrungna mikilgenglegum hugmyndum, finnum vér hvergi nema í ritningunni. Hugmyndin um þennan al- gjöra sérkennileik sögunnar kemr fram á mjög eftir- tektarverðan hátt á einunr stað f finrmtu Mósesbók. Þar talar Móses á þessa leið: „Því spyr þig fyrir um fyrri tíma, sem verið hafa á undan þér allt frá þeim tíma, er guð skóp mennina á jörðinni, og frá einu heims- skauti til annars, lrvort nokkurn tíma hafi orðið svo miklir hlutir eða nokkuð slíkt heyrzt, hvort nokkur þjóð hafi heyrt raust guðs tala út úr eldinum, eins og þú hefir heyrt, og þó haldið lífi. Eða hvort guð hefir til reynt nokkurn tíma að koma sjálfr, til þess að ná þjóð af ann- arri þjóð með máttarverkum, táknum og nndrum, og með styrjöld, sterkri hendi, útréttum armlegg og mikl- um skelfingum, eins og drottinn, guð þinn, gjörði við yðr í Egyptalandi í augsýn þinni? Þetta hefir þú feng- ið að sjá, svo að þú mættir vita, að drottinn, hann er

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.