Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1910, Side 15

Sameiningin - 01.06.1910, Side 15
III geta aldrei leitt af sér eða stofnað trúarbrögð; og ský- laus vitnisburðr sögunnar er sá, að aldrei bafi myndazt önnur eingyðis-trúarbrögð en þau, sem þegar eru nefnd — engin önnur trúarbrögð, er grundvölluðust á hug- mvndinni um einn, andlegan guð. Eða lítum á hitt atriðið, sambandið órjúfanlega milli trúar og siðferðis. Hvar á það sinn líka utan guð- iegrar opinberunar í ritningunni 1 Kirkjufaðirinn einn í fornöld hefir gefið oss lýsing á egypzku musteri, há- reistu, víðu, skrautlegu, mikilfenglegu, svo að öllum skaut skelk í bringu, sem þangað fóru til að biðjast fyrir. Gengir þú inn í helgidóm slíks musteris, og sæir prestinn með hátíðlegum svip draga til hliðar fortjald hins allra lielgasta, þá sást þú—hvaðl Kött, eða krókó- díl, höggorm, eða eitthvert annað dýr, sem flatmag- aði sig á purpuradýnum. Og hverfum nú til musteris Jehóva í Jerúsalem. Iiér finnr þú líka skrautlegt stór- hýsi, hér ] íka prestastétt, ölturu, og helgidóm hulinn bafc við fortjald. Innan við fortjaldið stendr sáttmálsörk- in og náðarstóllinn ofan á henni, roðinn fórnarblóði, í skugga tveggja gullinna kerúba. Sé nú loki þessu — náðarstólnum — lyft upp, þá horfir þú ofan í örkina, liorfir á hjartað, miðdepilinn, allra helgasta blettinn f helgidómi Gyðinga-trúarinnar, og þú sérð — hvað? Tvœr steintöflur, með árituðu siðferðislögmáli drottins. Þarna höfum vér í stuttu máli mismun þessarra tvenns- konar trúarbragða. Þar stendr skýrt útmálaðr fyrir oss sá sannleikr, að trú Israels er framar öllu öðru sið- ferðisleg trú. Því. að þetta eru sáttmálstöflurnar — grundvöllr og trygging sáttmála þjóðarinnar við guð — og a.Ilt helgisiða-kerfið er að eins umbúðir til að verja kjarnann skemmdum, eða til að taka tilbiðjendrna aftr til náðar, þegar syndin hefir hrifið þá burt úr samneytj heilagra. Þegar Kristr kom, þá sagði hann sig ekki úr lögum við þessa eldri opinberan, heldr kenndi hann, að allt lögmálið og spámennirnir bvggðist á boðnm hennar um elsku til guðs og manna.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.