Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1910, Page 26

Sameiningin - 01.06.1910, Page 26
122 Af þeim 120 þrælum, er bundnir voru meö járnhlekkj- um við þófturnar, var ekki einn, sem ekki spyrSi sjálfan sig aS þessu. í þeim fólkshópi var engin upplyftandi starfs- hvöt til. ÆttjarSarást, sómatilfinning, skyldurœkni gat ekki komiS til greina hjá neinum slíkum manni. ÞaS fór í gegn um þá sama tilfinning eins og alla þá, sem örlögin fley§ija óviSráSanlega og í blindni út í hættu. Telja má líklegt, aS jafhvel sá, sem sljóvastr var af þrælum þessum, liafi, þá er hann hélt ár sinni á lofti, hugsaS um allt þaS, sem komiS gæti fyrir, án þess þó aS geta vænt sér neins góSs. Því ef skipiS bæri sigr út býtum, þá myndi þaS aS eins leiSa til þess, aS hann yrSi fastar fjötrum bundinn svo lengi sem hann heyrSi skipi þessu til. En væri skipinu sökkt eSa þaS brennt upp, þá myndi sömu örlög ganga yfir hann og skipiS. HvaS væri aS gjörast utan skips mátti enginn þeirra grennslast eftir. Og móti hverjum myndi hér barizt? Ef til vill voru þaS vinir, brœSr, samlandar. Ef lesendr hugsa meir út í þaS mál, mun þeim skiljast, hví hinum rómversku yfirmönnum þótti óhjákvæmilegt á slíkum hættutíSum aS rtgbinda þessa aumingja-ræfla meS járnfjötrum viS þóft- urnar. En þaS var nú heldr lítill tími fyrir þá til aS hugsa um slíkt. HljóS nokkurt barst Ben Húr til eyrna aftan frá, og Astræa tók aS ruggast eins og mœtt hefSi henni öldugangr. Hann grunaSi, aS fleiri eSa færri herskip væri þar á ferS, búin til atlögu. Og blóSiS tók aS renna meS auknu afli í æSum hans. AnnaS merki kom ofan af þilfari. Árunum var dýft í sjóinn og galeiSan hreyfSist áfram hœgt og hœgt. Ekkert hljóS heyrSist hvorki utan aS né innan frá. Og þó setti hver maSr niSrí skipinu sig ósjálfrátt í þær skorSur, sem bentu til þess, aS hann byggist viS slagi. Og skipiS sjálft virtist vera sér hins sama meSvitanda. ÞaS var eins og þaS stœSi á öndinni og hnipraSi sig saman á líkan hátt og tígrisdýr áSr en þaS stekkr á bráS sína. Þá er svo stendr á, verSr tíminn aS óviSeiganlegri ráS- gátu. Ben Húr átti þess því engan kost aS gjöra sér neina hugmynd um vegarlengdina, sem farin var. Loks heyrSist lúSraþytr frá þilfarinu, sterkr, hvellr, í löngum lotiun. P'ormaSr rœSaranna sló hljóSborSiS svo aS í því söng. RœSararnir tóku svo löng áratog sem mest mátti. dýfSu árunum sem dýpst í sjóinn, og reru sameiginlega af öllu afli. Hver bjálki og fjöl og rá í skipinu nötraSi og skalf, og skipiS þeyttist áfram. Enn fleiri lúSrar tóku aS blása, fi allir í aftrhluta skipsins, en úr framstafni heyrSust hávær-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.