Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1912, Page 27

Sameiningin - 01.05.1912, Page 27
9i mikils vi'ð til að geta komiö því fram, sem nú liggr fyrir mér. Meö því aö skorast undan að þiggja nokkuö af þér nú á eg miklu hœgra með aö beiðast hjálpar þinnar hér- eftir.“ Meöan sem hæst stóð á ágreiningi þessum, komu tveir sendimenn — Mallúk var annar þeirra, en hinn var ókenndr. Mallúk var fyrr veitt áheyrn. Eins skapi farinn og Mallúk var, gjöröi hann sér ekk- ert far um að dylja fögnuð sinn ut-af þvi, sem gjörzt haföi þennan dag. „En svo eg komi að erindi mínu“ — mælti hann—, „þá sendi Símonídes húsbóndi minn mig hingað til að láta ykkr vita, að þá er kappleikunum var lokið, flýttu sér nokkrir úr flokknum, sem heldr með Rómverjum, aö koma fram með mótmæli gegn greiöslu fjár þess, er heitiö var aö verölaunum." Ilderim þaut upp og œpti eins hvellum rómi og orkan leyfði: „Við dvrð guös sver eg, að Austrheimr skal skera úr því, hvort sigrinn í veðhlaupinu var unninn svikalaust." „Rétt er það, kæri herra sjeik!“ — mælti Mallúk—, „enda hefir leikstjóri greitt fé þetta.” „Vel er það‘.“ „T’á er þeir sögðu, að Ben Húr hefði lostið hjóliö á vagni Messala, hló leikstjóri og minnti um leið á svipu- höggið, sem aröbskiu gœðingarnir urðu fyrir í akbrautar- króknum hjá leikmarkinu." „Og hvað varð af Aþenumanninum?" „Hann er dauðr.“ „Dauðr!“ — kallaði Ben Húr upp. „Dauðr!“ — endrtók Ilderim. — „Sú heppni, sem þessi rómversku ferlíki hafa með' sér! Messala sloppinn !“ ,,Sloppinn — já, herra sjeik! með lífið; en lífið verðr honum byrði. Læknar segja, að hann muni lifa, en aldrei framar á fœtr komast." Ben Húr leit upp-til himins þegjandi. Hann sá Mess- ala í anda, rúmfastan í stóli einsog Símonídes og einsog hann borinn um á herðum þjóna. Hinn margreyndi heiðrs- maðr hafði vel staðizt í þeim hörmungum; en hvernig myndi hinum farnast með öllu yfirlætinu og ofrkappinu? „Símonídes bað mig enn fremr að segja“ — hélt Mallúk áfram—, „að Sanballat sé kominn í vandræði. Drúsus og beir, sem með honum rituðu undir, skutu því til úrskurðar Maxentíusar ræðismanns, hvort þær fimm tal- entur, sem þeir töpuðu. skyldi greiddar af hendi, og hann hefir skotið þvi til keisara. Messsala skoraðist líka undan

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.