Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1912, Qupperneq 4

Sameiningin - 01.07.1912, Qupperneq 4
132 þjóðflokks vors hér. En í raun réttri, eða undir niðri, er lífsskoðan sú eða trúartegund, er síðast var nefnd, ekki neitt sérstakt eða sjálfstœtt. Hún telr sig sjálfa kristindóm —• kristindóminn í spán-nýrri og stórum endrbœttri útgáfu. Yér aftr á móti teljum stefnu þá í aðal-atriði vantrú — ekki hreina og beina vantrú, heldr vantrúna í nýrri útgáfu, að því leyti viðsjárverðari og háskalegri en þá, er Únítarar framfylgja, að liún gjörir sér far um að birtast í dularbúningi trúar. Meir eða minna hefir mein það, sem nú var á bent, gjört vart við sig hjá kristnum þjóðum víðsvegar um lönd í seinni tíð —* vantrú þessi hin dulklædda. Hver einasti flokkr kirkjunnar hefir að meira leyti eða minna orðið sýktr af því meini. Engu að síðr er það þó víst, að ekki hefð- um vér enn verulega af því að segja meðal Vestr-íslend- inga, ef það hefði ekki komið hingað til vor heiman frá Íslandi — frá leiðtogunum lielztu í kirkjunni þar. Er eg hugsa um það, að merkisberar ríkiskirkjunnar á Fróni skyld* eftir lengra eða skemmra flögranda eða andlegt fálm berast fyrir á þeim óheppilegu trúarstöðv- um, minnist eg þess, sem frá segir í Landnáma-bók önd- verðri útaf því, er Ingólfr Arnarson tók sér bólstað í Beykjavík. Hann kom upphaflega að landi langt austr frá, við Ingólfshöfða, og hafðist þar við hinn fyrsta vetr; annan vetr aði Hjörleifshöfða, og hinn þriðja undir Ing- ólfsfelli; hafði þá farið yfir megin-hluta Suðrlands, þann part eyjarinnar, er einna auðugastr var að land- gœðum. En ‘fyrir neðan heiði’ fréttir hann að þeim tíma liðnum til öndvegissúlna sinna; þær hafði rekið á land í Reykjavík, og þótti honum þá sjálfsagt, einsog eftir œðri bending að flytja sig þangað með aleigu sína og setjast þar að að fullu og öllu. En illa bitu vistaskifti bau á einn af mönnum hans, þann. er Karli nefndist. Honum varð þá þetta að orði: „Til ills fóru vér um góð heruð, er vér skulum byggja útnes þetta.“ Þá er brœðr vorir eftir um hríð að hafa þreifað fyrir sér* á landnámssvæði guðfrœðinnar létu fvrir berast á bletti þeim, er þein síðan hafa búið á, töldu þeir sennilega víst, að öndvegissúlur sínar hefði rekið þar. En jafn- óheppilegt og raunalegt var landnámsráð það eins fyrir l)ví. Vitandi eða óvitandi gjörðu þeir sitt til að koma þjóð vorri út-á andlegan útskaga — lengra og lengra

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.