Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1912, Side 16

Sameiningin - 01.07.1912, Side 16
144 þá einnig, að hreinn og lifandi kristindómr þarf nú fyrir hvern mun aS ná sér niöri á Islandi. í ,,Lögréttu“ (ig. JúníJ talar hr. Guðmundr Hjaltason vel og virðukga um ritling þenna, en „Isafold“ (^29. Júníj eins illa og háðulega og hún hefir orku til. Meðan stóð á kirkjuþinginu i Argyle, flutti hr. Þorsteinn Björnsson, kandídat, sá er þjónaði Garðar-söfnuði um hríð eft- irúrgönguna úr kirkjufélaginu, fyrirle'str um nýju guðfrœðina á þingstaðnum. 1 erindi því fór hann aðallega eftir bók Camp- bells prests hins enska The new theology, og var upplýsingum þeim veitt hin bezta eftirtekt. The Canada Lutheran, málgagn lútersku kirkjudeildarinnar í Mið-Canada heyrandi til Gen. Council, er nú með Júh farið að koma út. Séra Jón J. Clemens, sem fyrst átti heima i ísl. kirkjufélaginu, er ritstjórinn, 527 Somerset St., Ottawa. „Óðinn'ý myndablaðið, sem hr. Þorsteinn Gíslason í Reykja- vík stýrir, kemr í Maí síðastl. með „Nokkrar endrminningar“ úr æfisögu Magnúsar Eiríkssonar, Onítarans íslenzka (á. 1881J, sem var þjóðkunnr maðr á sinni tíð. „Endrminningar“ þessar eru í letr fœríiar á dönsku af próf. Fr. C. B. Dahl, í bréfi til séra Jóns Helgasonar prófessors, en hann hefir svo snúið þessu á íslenzku. Myndin af M. E. skýrist í huga vorum við þennan vitnisburð hins danska góðkunningja hans, sem enn er á lífi háaldraðr. Magnús Eiríksson er fyrirrennari Únítaratrúarinnar í nútíðarsögu þjóðar vorrar; það varð hann einkum með bók sinni um Jóhannesar guðspjall, ekki aðal-riti hans um það efni, „stóru bókinni'1 svo nefndu, sem hann skráði á dönsku, heldr með minna ritinu, er hann lét út gefið á íslenzku. Við lestr þess hurfu; ekki svo fáir Islendingar frá trúnni á guðdóm frelsarans. En heitr, jafnvel brennheitr, var Magnús í trú sinni, þótt í hana vantaði það mikla kristilega megin-mál; um þann hita bar bœn- rœkni hans ótvíræðan vott og það, hve mikla áherzlu hann lagði á bœnina; en því miðr hefir iífseinkunn sú ekki gengið að erfð til hinna andlegu niðja hans. Ekki er þess getið í „endrminn- ingum“ Dahls-, að Magnús Eiríksson hafi fyrir fortölur Islands- biskups ("Helga G. Thórdersens) látið til þess leiðast að sœkja um prestsembætti heima á ættjörð sinni — eitt bezta „brauðið“ íslenzka — og fengið veiting fyrir því, en síðan hið- bráðasta horfið frá því með öllu að bœta jarðneskan hag sinn á þann

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.