Litli Bergþór - 22.07.1987, Qupperneq 26

Litli Bergþór - 22.07.1987, Qupperneq 26
25 Nú fór aö líóa aö prófum og ég fann aö ég var illa á vegi þar sem ég tapaöi svona langri kennslu af skólatxmanum og víst flökraöi það aó mét aö taka ekki próf. En ég herti mig upp og hugsaói mér aö best væri aó duga eóa drepast og las allar stundir fyrir prófið og slampaðist sæmilega i gegnum þau. Skóla var slitiö í byrjun mai og nú var hugur minn aö komast suður i heimabyggö, en þaó var nú ekki hlaupið aö komast þaó, engar bilferóir og engar flug- feröir og ekki var aó tala um aö fara suóur Kjöl. Þaó varö nú úr aó ég fór póstleióina vestur sveitir og suöur Holtavöröuheiöi. Meó mér fór kennari minn Vigfús Helgason sem vann viö mælingar á Flóaáveitu. En þaó vandaóist nú máliö fyrir mér þar sem ég var þarna hestlaus og peninga- laus, þá var nú ekki um annað aö gera en aö kaupa hesta og fá allt lánað og þaó tókst. Ég keypti hest af Tómasi Jóhannssyni kennara sem reyndist góöur feröahestur þótt litill væri og fór ég á honum einum frá Hólum. Hann var litill en vel fóöraöur og reyndist vel. Fyrsta daginn fórum vió aó Stóra- Vatnsskarói og gistum þar, en daginn eftir fórum viö yfir Vatnsskarö og nú erum viö komnir aö Blöndu, þá óbrú- aðri. Mér leist nú ekki meir en svo á aó Litli-MÓsi, en svo nefndi ég hann, stæöi i þessum straumþunga. Vigfús var á tveimur hestum vel öldum og stórum ferðahestum. Mósi litli stóö sig vel og skilaöi okkur yfir. Við komum aö Sólheimum i Svinavatnshreppi og drukkum þar kaffi. Barst þá þar i tal aó ég þyrfti aö kaupa röskan og duglegan ferðahest, og segir hann þá viö dreng aö fara og reka heim hrossin. Bóndinn hét Páll en man ég ekki hvers son hann var. Ég var útiviö þegar hrossin voru rekin heim og sá ég aö á undan fer grár hestur, stór og föngulegur og sjáanlega hafói verió i eldisfóðri. Ég spyr Pál hvört hann sé falur sá grái og segir hann svo vera. Þetta gekk saman hjá okkur strax og ég kaupi hann á krónur 300 og borgi hann fvrir októberlok. Ég fór ekkert á bak honum áour en kaupin voru gerö, en þegar ég kom inn meö Svinavatni aö austan i mýrarflá fer ég á bak honum. Mig var farió aö gruna aö þarna væri flagð undir fögru skinni og reyndist það svo, aö þetta var alræmdur hrekkjahundur. Vió áttumst þarna lengi við en hann náöi mér ekki af baki en ég varö aó fara af baki þvi járnmélió i beislinu fór i sundur svo ég varð aó skipta um beisli. Svo gekk sæmilega aó komast á bak honum. Nú var ég farinn aö læra á hans listir og mér óx kjarkur aö eiga við hann. Ég hugsaði honum þegjandi þörfina þvi ég fann strax aö þetta var þrekhestur. Ég reió þeim gráa alveg út daginn aó Brekku i Þingi og þar gistum við. Daginn eftir var lagt snemma af staö. Viö komum að Staöarbakka og fengum góö- geróir þar og hey handa hestunum. Ekki man ég hvaó bærinn hét sem við gistum á næstu nótt en það var ekki langt þaóan aö Grænumýrartungu, sem er næsti bær vió Holtavöröuheiðina. Þangað fórum vió heim aö fá fréttir og fengum hey handa hestunum og mat handa okkur. Þetta var allt til reiðt og vel útilátió. Nú fórum viö aö spyrja um ferðir yfir heióina og töldt þeir aö hún heföi verió semsagt ófær fyrir hesta undanfarna daga þvi þaö hefði verið svo mikil sólbráö og snjórinn væri gífurlegur og væöi nióur úr öllu. Svo var okkur sagt aó matarlaust og heylaust væri í Forna- hvammi svo ekki væri um aö ræöa aó gista þar. Viö uróum alveg að' ganga þegar viö komum upp á heióina, því hestarnir lágu alltaf á kviöi og brutust um. Þaö bjargaöi okkur aö veóriö var þurrt og gott því við vorum illa verkaöir og var víöa krapaelgur. Klukkan 4 um nóttina vöktum vió upp í Sveinatungu og vorum vió heldur fegnir og fengum góöar móttökur fyrir menn og hesta. Þegar við fórum aó búa okkur til brottferðar og leggja á hestana um morguninn, kom í ljós að báöir hestar Vigfúsar voru eymdir á baki svo aö varla var leggjandi á þá hnakkur. Annars geröu mínir hestar þaö gott og sá grái var mikið til hættur aó hrekkja. Þaö var hestur í fóöri frá ráðsmanninum á Hólum á Hesti í Borgar- firöi og ég samdi um þaö áöur en ég fór aó ég fengi hann keyptan ef ég vildi og mér litist á hann. NÚ fór ég aó skoöa hestinn og var allt í lagi meö hann. Hesturinn var vel fóðraður og fallegur svo ég ákvaö að kaupa hann og lánaði Vigfúsi hann til Reykjavíkur. Næstu nótt gistum við aö Grund i Skorradal, þar var mikið myndarheimili og engu sparað viö menn og hesta. Um morguninn þegar menn og hestar voru búnir aö þiggja góögeröir kvöddum viö þessi heiöurs- hjón og ekki var að tala um aö þau tækju neitt fyrir gistinguna. Þá héldum viö áfram sem leið liggur til Reykjavíkur og bar ekkert sérstakt til

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.