Litli Bergþór - 01.12.1997, Side 4
Frá Ungmennafélaginu
Heil og sæl, lesendur góðir!
Margt hefur verið að gerast í Ungmennafélaginu undanfama mánuði og það má segja að það hafi bara verið þó
nokkuð líf í starfseminni.
Unglingarnir voru virkjaðir vel í sumar og stóðu sig frábærlega. A síðasta aðalfundi félagsins var kosin
unglinganefnd eins konar skemmtinefnd og í hana völdust Daníel, Ketill, Björt, Ivar og Gunnar Öm. Svipuð nefnd
hefur verið kosin á hverjum aðalfundi og hefur stjóm átt að kalla hana saman og vinna með henni, en það hefur yfirleitt
verið stjórnin sem hefur ekki staðið sig og því oft verið minna gert en börnin hefðu viljað. En nú var nefndin boðuð
saman og upp komu óteljandi hugmyndir um hvað gaman væri að gera og niðurstaðan var að byrja á óvissuferð 14.
júní. Síðan hittumst við aftur og þá var ákveðið að fara í eina Reykjavíkurferð og siglingu niður Hvítá. Allt tókst þetta
mjög vel. En þessi nefnd fékk að vinna meira en til stóð, því hún var öll sett í þjóðhátíðamefnd undir stjóm Jórunnar
Svavarsdóttur, og ég held að krakkamir hafi bjargað deginum.
Aðalstjóm hafði annars rólegt um sig í sumar, tók sér sumarfrí til að undirbúa þurfti réttarsúpuna. Salan í réttunum
var góð þó svo að súpan hafi hækkað verulega milli ára en það kvartaði enginn. Við komum vel út úr sölunni
fjárhagslega enda þarf það að vera svo það réttlæti alla þessa vinnu við undirbúininginn sem er ótrúlega mikill.
íþróttadeildin sér aðallega um sumarstarfið og hefur í nógu að snúast. Fyrir utan venjulegt íþróttastarf var deildin
með hlutaveltu og kökubasar í sölutjaldinu í júlí og gekk það all vel.
Þann 19. október var virkilega skemmtileg samkoma eða fundur í Aratungu, en þar hittust 16 fyrrverandi formenn,
núverandi stjóm og einnig vora boðaðir stjórnarmenn deilda. Það má segja að til fundarins var boðað til að fá
hugmyndir um hvað gera ætti á 90 ára afmælinu. Þegar upp er staðið þá finnst mér ánægjulegast að svona margir
formenn skyldu gefa sér tíma til að koma til okkar.
Hugmyndir komu frá mörgum, flestar, ef ekki allar framkvæmanlegar t.d að hressa upp á fánann okkar, sem er
orðinn lúinn. Ég hef alltaf horft á hann sem fallegasta félagsfánann sem ég hef séð en ekki tekið eftir því að hann er
farinn að eldast, því var þetta góð ábending. Leikrit þarf að setja upp á afmælisárinu og vildu margir að eitthvað gamalt
yrði tekið upp og sýnt en þá var þegar búið að ráða leikstjóra og velja leikrit svo að gömlu stykkin bíða um sinn.
Leikritið Lénarður fógeti var fyrsta leikritið sem sýnt var í Aratungu og spuming er hvort ekki megi taka það upp á
afmælisári Aratungu. Aðrar hugmyndir: Skógarskoðun um reiti Ungmennafélagsins og gera göngustíga þannig að
auðveldara verði að ganga um. Gera íþróttimar sýnilegri og hafa íþróttakvöld, efla fræðslustarf og hafa málfundi, gefa
út gömlu fundargerðarbækurnar og lesa uppúr þeim. Hafa þemaverkefni um Ungmennafélagið í samstarfi við skólann
og stofna karlakór sem syngi á afmælishátíðinni, sem sagt halda upp á afmælið á sem breiðustu sviði. En fyrst og
fremst afmæliskaffi með rjómatertum á sumardaginn fyrsta.
Okkar elsti formaður Stefán Sigurðsson mætti á staðinn, hélt ræðu og gaf félaginu lag eftir sig, en ljóðið er eftir
Svein Sæmundsson. Það er búið að syngja það inn á spólu, en það gerði vinur hans Vilhjálmur Sigurjónsson. Þá var
bara náð í segulbandstæki og gátum við hlustað á það á staðnum. Gaman væri að frumflytja það á afmælishátíðinnþen
ljóðið hefst þannig:
Ifaðmi blárra fjalla, meðfanna og jökul skalla
hún liggur landsins perla, mín Ijúfa
bernskusveit.
Stefán! bestu þakkir!
Að loknum fundi var kaffi og kökur á
boðstólum og sátu menn og konur góða stund við
spjall. Þá kom tillaga frá Bimi Erlendssyni að
fyrrverandi formenn gæfu félaginu nýjan fána og
var það samþykkt með lófaklappi. Ég vona að allir
hafi haft jafnmikla ánægju af þessum fundi eins og
ég-
Þessa dagana er að Ijúka dansnámskeiði, þar
sem 12 pör æfa fótfimi sína undir stjórn Astu og
Halldórs á Efra-Seli en Garðar Olgeirsson spilar
undir á harmonikku. Vel heppnað námskeið í alla
staði.
Félagsbúningamir okkar eru í vinnslu og verða Núverandi og fyrrverandi fonnenn Umf Bisk. Fremri röð:
tilbúnir fyrir jól en um 40 manns pöntuðu galla. Margrét Sverrisdóttir, Björn Erlendsson, Sigurður Þorsteinsson,
Bestu jóla og nýárskveðjur til ykkar allra og við Stefán Sigurðsson, Eiríkur Sœland, Helgi Kr. Einarsson.
þökkum þeim sem hafa stutt við bakið á félaginu á Aftari röð: Sveinn A. sœland, Sveinn Skúlason, Guðni Lýðsson,
liðnum árum. Brynjar Sigurðsson, Einar Geir Þorsteinsson, Arnór Karlsson,
Fyrir hönd Umf. Bisk., Margrét Sverrisdóttir. Kjartan Sveinsson, Gunnar Sverrisson, Björn Bj. Jónsson, Jens
Pétur Jóhannsson, Sigríður J. Sigurfmnsdóttir.
Litli - Bergþór 4