Litli Bergþór - 01.12.1997, Page 6
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsráðsfundur 3. júlí 1997.
Aðalfundargerð Sorpstöðvar Suðurlands dags.
23. maí 1997. Aðalfundi lauk ekki, vegna ágreinings um
sorpurðunarmál og fundi frestað til 15. sept. og skal
sáttatillaga þá liggja fyrir. Kynnt að öðru leyti.
Bréf Hrunamannahrepps dags. 13. júní. Þar er
samþykkt að taka þátt í sameiginlegri úttekt á sex
grunnskólum í uppsveitum svo fremi að öll sveitarfélögin
séu með.
Samningur um uppgræðslu Hóla og Tunguheiðar
undirritaður af Landgræðslu nkisins, Biskupstungna-
hreppi, sem eiganda Hóla, Landgræðslufélagi
Biskupstungnahrepps og fulltrúa Bræðratungukirkju,
kynntur.
Bréf Skipulags ríkisins dags. 19. júní 1997. Þar er
hafnað þátttöku í aðalskipulagi (endurskoðun) Laugaráss
og Skálholts. I bréfinu kemur fram að þörf er á
heildstæðri landnotkunaráætlun og aðalskipulagi fyrir
alla sveitina. Með fylgir staðlaður tvíhliða samningur
vegna skipulagsgerðar. Hreppsráð tekur undir þörfina og
leggur til að Pétri Jónssyni verði falið að leggja fram
tíma og kostnaðaráætlun í allt verkið.
Aætlanir skólastjóra Reykholtsskóla dags. 26/6
1997. Hann leggur fram kennsluáætlun, áætlun um
nemendafjölda, áætlun um starfsmannafjölda og
fjárhagsáætlun að gefnum ákveðnum forsendum.
Guðmundi falið að yfirfara áætlanimar í samráði við
Skólaskrifstofu Suðurlands.
Bréf Umferðaröryggisfulltrúa Suðurlands dags.
27. og 30. júní 1997. Hann óskar eftir upplýsingum um
reglugerðir v/lausagöngu búfjár. Engar samþykktir eða
reglugerðir em til fyrir sveitina og er oddvita falið að
koma þeim upplýsingum til skila. Einnig skorar hann á
sveitarstjómina að hafa öryggisbelti í skólabílum.
Erindinu vísað til skólanefndar.
Bréf sýslumanns dags. 30. júní 1997. Endumýjun
áfengisleyfis fyrir Hótel Geysi og einnig sótt um leyfi til
áfengisveitinga utan dyra. Gísla falið að leita álits
félagsmálanefndar. Hreppsráð samþykkir að fengnu því
leyfi.
Bréf Samb. ísl. Sveitarfélaga dags. 24. júní 1997.
Kynnt ný lög um vinnumiðlun og atvinnuleysis-
skráningu, þar sem þau mál færast frá sveitarfélögunum
til ríkisins.
Bréf Sorpstöðvar Suðurlands dags. 20. júní 1997.
Tillögur að gámavelli og jarðgerðarstað við Laugarás.
Hreppsráð telur að leita þurfi ódýrari og einfaldari leiða
til að leysa vandamál garðyrkjubænda ofl. sem hafa
lífrænan úrgang frá fyrirtækjum sínum. Skoða þarf
vandlega þá hugmynd að hafa opna gáma í nágrenni
garðyrkjubýla, þar sem allir ættu þess kost að losa sig við
lífrænan úrgang og ef til vill aðra smærri til móttöku á
jámarusli. Hreppsráð leggur til að gryfjum í Laugarási
verði lokað sem fyrst og áðurnefndar leiðir skoðaðar
vandlega.
Afsal vegna Asholts í Laugarási dags. 16. júní
1997. Kaupverð kr. 1.600.000.-. Hreppsráð leggur til að
ekki verði neytt forkaupsréttar. Seljandi er Jakob G.
Havsteen Háteigavegi 32 Reykjavrk. Kaupandi er
Jóhann Bjöm Oskarsson Strandaseli 2 Reykjavík.
Gísli kynnti frágang lóðasölu í Laugarási samkv.
bókun nr. 4 frá hreppsráðsfundi 23. apríl 1997.
Kaupandi er Gunnar Guðbjömsson.
Greiðslufyrirkomulag: Kr. 300.000 í peningum kr.
400.000 í málverkum. Málverkin heita: Þjóðarskútan,
Rjúpur, A leið í Selsund og Álfakirkjan í Dritvík á
Snæfellsnesi.
Umsókn Gyfla Haraldssonar og Péturs
Skarphéðinssonar um lóðir í Laugarási. Þar sem sýnt er
að skipulag í Laugarási frestast um stund samkv. lið nr.
11 í þessari fundargerð, þá leggur hreppsráð til að Pétri
Jónssyni verði falið að leita lausna á umsókn þeirra og
gera tillögur þar um.
Aðstaða Landsbanka íslands. Á fundinn mættu
þrír fulltrúar bankans til viðræðu um
framtíðarstaðsetningu bankans í ljósi þess að honum
hefur verið sagt upp húsnæðinu í Reykholtslaug.
Bankamenn lýstu eindregnum áhuga sínum á að vera
áfram í Reykholti og lokun til skemmri eða lengri tíma
væri ekki uppi á borðinu. Þeir lýstu áhuga á að byggja
með öðrum og leigja síðan aðstöðuna. Þeirri hugmynd
var velt upp hvort hægt væri að byggja í samvinnu við
Bjamabúð og ef til vill fleiri niður við þjóðveg. Aðilar
vom sammála að hraða þyrfti málum.
Hreppsráðsfundur 7. ágúst 1997.
Fundargerðir byggingarnefndar íþróttahúss frá
ll.júní, 15. júlíog 31. júlf 1997. Kynntar teikningar
sem Hjördís Sigurgísladóttir hefur skilað sem fyrstu
hugmyndum. Byggingamefndinni falið að vinna áfram
að málinu enda hreppsráð sátt við útfærslu á tengingu
salar við sundlaugarhús.
Bréf Tölvumiðlunar dags. 28. júlí 1997. Þar er
kynnt breyting á tölvumálum sveitarfélaga þar sem
Samb. ísl. sveitarfél. hefur samið við Tölvumiðlun ehf.
um þjónustu við sveitarfélög. Ganga þarf frá samningi
fyrir 1. desember 1997.
Bréf Selmúla ehf. dags. 22. júlí 1997. Sótt er um
kalt vatn í a.m.k. 9 sumarhús í Holta- og Ásahverfi í
landi Fells, helst fyrir veturinn. Hreppsráð leggur til að
gerð verði kostnaðaráætlun í heildarverkið og að
stofngjöld verði greidd í upphafi fyrir 30 lóðir, kr.
30.000,- á lóð. Miðað er við að hreppurinn leggi að
lóðarmörkum og er stofngjald miðað við það.
Bréf Sigurðar Jóns’sonar dags. 30. júlí 1997. Sótt
er urn kalt vatn að fimm sumarhúsum í landi Heiðar í
framtíðinni. Verið er að byggja eina lóðina og
samþykkir hreppsráð að leggja að henni nú í haust.
Bréf Sýslumannsins á Selfossi dags. 24. júlí 1997.
Oskað er eftir umsögn um leyfi til vínveitinga í
veitingastofu við Iðubrú í Laugarási. Oddviti hefur veitt
bráðabirgðaleyfi með fyrirvara um samþykkt
félagsmálanefndar. Hreppsráð samþykkir fyrir sitt leyti
að fengnu samþykki félagsmálanefndar.
Litli - Bergþór 6