Litli Bergþór - 01.12.1997, Blaðsíða 12

Litli Bergþór - 01.12.1997, Blaðsíða 12
U.M.F. Biskupstungna Ferðasaga. Föstudaginn 25. júlí lögðu af stað til Reykjavíkur um 16 ungir og einn eldri. Þá var kl. hálf tólf. Byrjað var að fara í keilu í Öskjuhlíðinni. Þegar við komum inn var andrúmsloftið þakið spennu og hávaði sem fylgir öllu þar inni, keilunum, tölvuleikjunum o.fl. Þetta virkar á mann og það var eins og allir tendruðust. Við fengum kennslu á tölvuna við hverja keilubraut svo voru fjórir og fjórir saman. Sumum gekk vel en öðrum illa og þá var þetta ekkert gaman svo þetta tók fljótt af, en þama inni eru líka allskonar tölvuleikir sem freistuðu marga. Ég er viss um að við höfum skilið eftir drjúgan aur þama á staðnum. Nú vildu nokkrir fara í Kringluna en það var næsta á dagskrá. Rútuna sendi ég í burtu þar sem við gátum alveg verið án hennar allan daginn að mér fannst en þá þurftum við að ganga alla leiðina að Kringlunni og það tókst, sveitafólkið rataði. En þar sem nokkrir voru eftir í keilunni varð ég að ganga aftur til baka og ná í þá sem eftir voru, því þeir vora ekki alveg vissir um að rata. Nú var kl. bara rétt um fjögur og það átti ekki að fara í bíó fyrr en kl. níu. Nú var bara að eyða tímanum þama og um kl. sex vom margir búinir að fá nóg og við fóram að fá okkur að borða þegar allir vom fundnir. Það var þetta með bíóið, upphaflega átti að fara í Kringlubíó en þar var ekki hægt að velja um margar myndir og sumir búnir að sjá þær o.s.frv. Það var samþykkt að fara í Sambíóin í Álfabakka. Nú þurfti sveitafólkið að taka strætó, púff. Fararstjórinn ekki vanur en varð að standa sig, jú þóttist finna rétta strætóinn og arkaði með liðið. Enginn með miða allir með klink, enginn vissi hvað kostaði og var bflstjórinn lítið ánægður með okkur. Strætó ekur af stað og eftir smástund kemur einn og spyr mig, „erum við í réttum strætó“? „Já, já,“ sagði ég og mikið var ég fegin þegar við nálguðumst Álfabakka, því ekkert hefði verið neyðarlegra en að fara með allt liðið í vitlausan strætó. Þegar kl. var 23.00 tíndust festir út úr húsi og rútan kom að ná í okkur og allt var klárt nema hvað Ketill og Gunnar höfðu farið á mynd sem ekki var búin fyrr en 23.30. En þar sem Björt ætlaði ekki með okkur til baka og þurfti að komast í hús á Njálsgötunni fékk ég bflstjórann til að keyra hana eitthvað áleiðis og það varð til þess að við þurftum ekkert að bíða að ráði. Heimleiðin gekk vel nema hvað sumir hefðu þurft að komast á salemið. En nú var allt lokað og einnig rútusalemið, og ekki vildu þeir hlaupa út í íslenska náttúra. Ekki veit ég hvemig þetta fór allt saman. Takk fyrir ferðina krakkar. MaggýT Ungmennafélagar jyrir utan Kringluna. Aldreifce ég aðfara í ungmennaferð! Hvítársigling. í lok ágúst var skipulögð Hvítársigling af skemmtinefndinni fyrir unglingana í sveitinni. Á annan tug ungmenna héðan ásamt tveim hópum úr Reykjavík héldu í svaðilför niður Hvítá. Var þetta hin skemmtilegasta ferð, þar sem okkar bátur var greinilega bestur með öflugasta liðið. Var stoppað við klett, þar sem er hefð af hoppa fram af niður í ána. Reyndar hafði einn bátur haft viðkomu á kletti ofar í ánni við mikla kátínu hinna áhafnanna. Eftir að þeir sem vildu og máttu höfðu látið sig vaða í ána af klettinum var haldið áfram niður ána með viðeigandi vatnsslag og húllum hæ. Var þetta síðasta ferð eins liðsstjórans og var hún kvödd með viðeigandi baði. Allir fengu sitt bað þó sumir meira en aðrir. Þegar komið var í land var haldið heim að Drumboddsstöðum í heyvagni, blaut, svolítið köld en í miklu stuði og ánægð með frábæra ferð. Eftir að við vorum komin í þurrt var vaðið í kakóið hjá bátafólkinu, en það var alveg frábært og kunnum við þeim bestu þakkir. Ferðalokin urðu svo í Hrosshaga þar sem allir smjöttuðu á gómsætum pitsum (flatbökum) sem Margrét eldaði. Þessar tvær ferðir í sumar, óvissuferðin og siglingin em lýsandi dæmi um að unglingamir okkar geta og vilja vera traustsins verð, að fá að reyna sig sjálf. Sýna ykkur foreldmnum að þau geta skemmt sér og notið þess að vera ung. Ég vil bara segja takk fyrir að fá að fara þessar ferðir með ykkur krakkar. Þið vomð og erað frábær að ferðast með. Skipaður ferðahirðir. Magnús Ásbjömsson. Litli - Bergþór 12

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.