Litli Bergþór - 01.12.1997, Qupperneq 15
Kvenfélagsfréttir
A hádegisbamum
á Hólmavík.
fegursta veðri og fengum góðar
móttökur á Ströndum. Fyrsta
kaffihlaðborðið var á Prestbakka í
Hrútafirði hjá frú Guðrúnu Láru
prestmaddömu þar og hennar
kvenfélagskonum. Utvegaði hún
okkur leiðsögukonu, sem fylgdi
okkur norður í Bjamarfjörð, þar
sem við gistum í tvær nætur á
gistiheimilinu á Laugarhóli í góðu
yfirlæti. Næsta dag var keyrt
norður í Ameshrepp undir leiðsögn
annarrar kvenfélagskonu, með
viðkomu á öllum helstu
merkisstöðum og að sjálfsögðu
kaffihlaðborðum og matarboðum
kvenfélaga í hverri sveit. Veðrið
var svolítið napurt fyrri partinn, en
létti til þegar á daginn leið og hélst síðan bjart og gott
það sem eftir var ferðar. Varð ferðin öll hin
ánægjulegasta og köllum við hana veisluferðina miklu.
I byrjun júní fjölmenntu félagskonur í skógræktarreit
Kvenfélagsins í landi Spóastaða og lögðu göngustíga um
svæðið með trjákurli. Einnig var gróðursett og snyrt og
klippt.
I tilefni af opnun nýju Heilsugæslustöðvarinnar í
Laugarási, gáfum við, ásamt þremur öðrum nágranna
kvenfélögum, heilsugæslustöðinni peninga til
tækjakaupa, sem við afhentum sameiginlega eitt
góðveðurskvöld í júní. Var hlutur okkar í þeirri gjöf kr.
190 þúsund.
Nú, þessar vikumar, standa yfir námskeið í
perlusaumi, kransagerð og kortagerð á vegum
kvenfélagsins. Afraksturinn af námskeiðunum á svo að
selja ásamt kökum og
ýmsu fleiru á jólabasar,
sem verður á sama tíma og
jólahlaðborðið í Aratungu,
þann 6. des. Þar verða
einnig til sölu jólakortin
frá S.S.K., en allur ágóði
af þeim rennur í
sjúkrahússjóðinn. Ágóða
af jólabasamum verður
hinsvegar varið til
tækjakaupa í smíðastofu
barnaskólans.
Eg fór á formannafund
S.S.K. í byrjun nóv., og
var það góður fundur.
Virðast kvenfélögin víðast hvar vera á fullu. Næsta ár er
afmælisár hjá S.S.K. og á að halda sameiginlega hátíð
með Búnaðarsambandi Suðurlands á góðum stað næsta
sumar.
Gleðileg jól öll sömul og megi næsta ár vera fullt af
félagsmálagleði!
Skrifað um miðjan nóvember 1997,
Oddný Jósefsdóttir, Brautarhóli.
Oddný afhendir Pétri lœkni
peningagjöffrá 4
kvenfélögum.
Síðast komu fréttir af okkur
kvenfélagskonum fyrir ári síðan, en
þær hripaði ég niður í flýti á
stjómarfundi fyrir frú Margréti
formann á Króki. Þá var ég
varaformaður, en nú hef ég hækkað
í tign, var kosin formaður á síðasta
aðalfundi í febrúar s.l. (æ, æ,
aumingja ég!). Með mér í stjóm eru
Kristín Sigurðardóttir ritari,
Geirþrúður gjaldkeri og
meðstjómendur og varakonur, þær
Ingibjörg Bjama, Sigrún Reynis,
Aðalheiður Helga og Guðrún Ólafs.
Sumarfengu sér sundsprett í lauginni á
Krossnesi í Arneshreppi.
Kvenfélagskonur á leið norður á Strandir,
við fossinn Glym í Norðurá í Borgarfirði.
Minn fyrsta fund, vorfundinn hélt ég hér heima og
auglýsti hann á forsíðu Tungnatíðinda, svo það færi ekki
fram hjá neinni. Bjóst við góðri nætingu, en það var ekki
aldeilis. Mættu sex. Ekki leist mér nú á, ætlaði félagið
alveg að lognast útaf?
Á fundinum ákváðum við samt að fara
í þriggja daga ferð norður á Strandir og
hætta ekki við þótt þátttaka yrði dræm.
Vomm við með því að endurgjalda
heimsókn kvenfélagskvenna af Ströndum
fyrir 3-4 árum. Þann 23. júní fómm við
því tólf saman í rútu norður á leið í
Litli - Bergþór 15