Litli Bergþór - 01.12.1997, Page 17
Nokkur orð um Bergholtsbúa
Þegar ég kom hér í Tungurnar fyrst, þá voru engin hús fyrir framan Aratungu, en ekki liðu nema nokkur
ár þegar fóru að rísa hús eftir hús. (þau blasa við út um stofugluggann hjá mér.) Tvö af þessum húsum
ganga undir nafninu Bergholt eldra og nýrra. Þangað fluttust nokkrir eldri borgarar héðan úr sveitinni og
langar mig að minnast þeirra, bæði þeirra sem kvatt hafa, og hinna sem eftir lifa, með nokkrum orðum.
Erlendur frá Dalsmynni, sem alltaf var kallaður Lindi, göngugarpur
mikill, gekk „auðnuleysishringinn“ hvern dag sem veður leyfði. Kom
þá oft við í búðinni til að spjalla og bað um „6 græningja í
nærbuxnapoka“. Alltaf jafn hress og brosmildur.
Sveinn og Magnhildur frá Drumboddsstöðum, barnfóstrur góðar
bæði tvö. Fengum við bamafólkið í
hverfinu þau stundum til að sitja hjá
bömunum okkar ef við þurftum að
skreppa frá, hurfu þá gjarnan götin á
sokkunum í sokkakörfunni hiá mér um
leið.
Eirfkur Sveinsson frá Miklholti, 1 Haukur, Ingvar og Ásbjörn.
hagleiksmaður, alltaf tilbúinn að hjálpa til
við að ditta að hinu og þessu. Marga rúðu
var hann búinn að bæta í gróðurhúsin hjá
okkur og fleirum. Ingvar, Þorlákur og Sveinn.
Bræðurnir Haukur og Ingi frá
Hvítárbakka vom með hesta og höfðu á húsi á Norðurbrún að vetmm. Röltu
þeir á milli til að sinna þeim og fylgdust þá með okkar hrossum hinumeginn
við holtið um leið. Þurftum við ekki að hafa áhyggjur af þeim.
Einar frá Kjarnholtum kom og var í nokkur ár, en fluttist svo í burtu.
Kynntist ég honum því miður ekki mikið.
Asbjöm og Kristín frá Víðigerði komu svo, en Kristín var því miður
stutt. En sem kvenfélagskonu minnist ég hennar sitjandi við borð í
eldhúsinu í Aratungu ásamt Júlíönnu frá Litla-Fljóti, að smyrja flatkökur og
hella á kaffikönnur fyrir jarðarfarir. Einnig vann hún ötullega í
gróðurreitnum okkar.
Svo em þeir Þorlákur og Haukur Daðason, stríðnispúkar báðir tveir, sem gaman er að spjalla við.
Oft var rölt á milli og tekið í spil, svona til tvö eða þrjú að nóttu. Gekk þá neftóbaksbaukurinn iðulega í
hring kringum borðið, slatti úr honum lenti stundum undir borðinu, ákafinn var svo mikill í spilamennskunni.
Man ég sérstaklega eftir hvað gaman var að Magnhildi við spilaborðið. Karlamir vom að stríða henni, en
hún lét þá nú ekki eiga neitt hjá sér og svaraði vel fyrir sig.
Við hjónin höfum haft fyrir sið á hverju hausti að bjóða öllum úr Bergholti í mat, tínt þá upp úr kistunum
hangikét, svið og svín. Gjaman orðið smá jólastemming yfir borðum og svo var spilað og hlustað á
kóramúsík. Ingi karlinn hafði alltaf mjög gaman af því þegar Karlakórinn Heimir eða Skagfirska
Söngsveitin voru á fóninum.
Nú er boðið ný afstaðið, en þar sem ekki vom nema þrír karlar eftir í Bergholti, buðum við nokkrum úr
næstu húsum við hliðina.
Ég gæti skrifað margt fleira um Bergholtsbúa, en ég held ég hætti núna.
Ég vona bara að það flytjist nýir (gamlir) í Bergholtið fljótlega, svo hægt verði að slá í spil.
Oddný á Brautarhóli.
Erlendur, Eiríkur og
Haukur Ingvarss.
Nefndir kosnar á haustfundi Loga 25. nóvember 1997.
Árshátíðarnefnd:
Bjami Kristinsson Brautarhóli
Guðný Höskuldsdóttir Kjamholtum
Guttormur Bjamason Skálholti
Þráinn Jónsson Miklaholti
Hákon Gunnlaugsson Hvítárbakka
Pétur Skarphéðinsson Launrétt
Gísli Einarsson Kjamholtum
Útreiðarnefnd:
Þórey Jónasdóttir Haukadal
Njörður Jónsson Brattholti
Guðmundur Óskarsson Kistuholti 9
Fræðslu og útbreiðslunefnd
Valdimar Ármann Efri-Reykjum
Guðný Höskuldsdóttir Kjarnholtum
Kristinn Antonsson Fellskoti
Æskulýðsnefnd
Hólmfríður Ingólfsdóttir Brennigerði
Helgi Guðmundsson Hrosshaga
Benedikt Skúlason Kirkjuholti
Reiðveganefnd
Kristján Kristjánsson Borgarholti
Kristinn Antonsson Fellskoti
Gæðingakeppni og reiðskólanefnd
Kristján Kristjánsson Borgarholti
Drífa Kristjánsdóttir Torfastöðum
Sigurjón Sæland Kistuholti 16
Framkvæmdanefnd íþróttadeildar
Knútur Ármann Friðheimum
Sonja Gylfadóttir Efri-Reykjum
Bryndís Kristjánsdóttir Borgarholti
Benedikt Skúlason Kirkjuholti
Óttar Bragi Þráinsson Miklaholti
V
J
Litli - Bergþór 17