Litli Bergþór - 01.12.1997, Blaðsíða 22
Heislugæsla í hundrað ár..frh.
Jón Eiríksson oddviti, Vorsabæ 2, Skeiðahr. 1959-1990.
Loftur Þorsteinsson, oddviti Haukholtum,1990.
Arið 1990 varð sú grundvallarbreyting í framhaldi af
samningi ríkis og sveitarfélaga um breytta
verkaskiptingu, að ríkið tók yfir rekstur
heilsugæslustöðva.
Heilsugæslustöðvarnar eru nú settar á föst fjárlög en
skulu að auki afla sér tekna með komugjöldum og öðrum
sértekjum.
Stjóm þeirra er skipuð af ráðherra eftir tilnefningu,
nema formaðurinn án tilnefningar.
Ég var stjórnarformaður Heilsugæslustöðvarinnar eftir
að hún var stofnuð 1974 og til 1990 og ráðherraskipaður
1990-1994. Einnig var ég framkvæmdastjóri til júnfloka
1996.
Núverandi stjórnarformaður er sr. Axel Ámason og
framkvæmdastjóri er Jónas Yngvi Ásgrímsson.
Ég á margs að minnast frá þessum árum. Er mér
minisstætt hve samstarfið við þá oddvita og
sveitarhöfðingja, sem ég starfaði með var ánægjulegt.
Áhugi þeirra á að halda hér uppi góðri
heilbrigðisþjónustu var mikill - og ekki stóð á framlögum
hreppanna þegar þess þurfti með.
I stjóm Heilsugæslustövarinnar ríkti eindrægni í að
koma fram málum og samstarfið við lækna og annað
starfsfólk var yfirleitt gott.
Elínborg á Iðu og Asta á Sólveigarstöðum afhenda
Heilsugceslustöðinni bamavog og leikföng frá Kvenfélagi
Biskupstungna árið 1990.
Enn vil ég minnast góðra samskipta við starfsfólk
heilbrigðisráðuneytis og alþingismenn og þegar á allt er
litið, tel ég að vel hafi verið tekið á okkar málum, þótt
fjárveitingar hafi dregist oft ansi mikið á langinn.
Og ekki skal gleymt góðum hug og stuðningi, sem
félög og samtök í héraðinu hafa sýnt til að bæta
heilbrigðisþjónustuna með því að gefa lækningatæki og
áhöld, sumt stórgjafir. Eru það kvenfélögin,
Krabbameinsfélag Árnessýslu, Rauða kross deild
Ámessýslu, Sontaklúbbur Ámessýslu, Lions- og
Kiwanisklúbbar. Lionsklúbburinn í Laugardal hefur
gefið flest tækin á heilsugæsluselið á Laugarvatni.
Síðast eða 1996 gaf Eiríkur Sveinsson frá Miklaholti
stjórgjöf, eina milljón króna til tækjakaupa.
Heilbrigðisráðherrar hafa komið í heimsókn með fríðu
fömneyti ráðuneytisfólks. Matthías Bjamason kom
fyrstur árið 1976, þá kom Svavar Gestsson og loks
Sighvatur Björgvinsson 1991.
Við reyndum að taka vel á móti þessum ágætu gestum
og þessar heimsóknir vom bæði gagnlegar og
skemmtilegar. Ráðherramir slógu á létta strengi og ég
man að Matthías sagði okkur söguna af því þegar
Sigurður á Laugabóli skaut hrútinn yfir fjörðinn. Þannig
var að nágranni hans á Móum, hinum megin Mjóafjarðar,
bað Sigurð um að skjóta fyrir sig hrút og tók hann því vel
og sagði honum að fara með hrútinn niður í flæðarmálið.
Og þar skaut Sigurður hrútinn yfir fjörðinn í klofinu á
karlinum.
Sighvatur sagði okkur skemmtilega sögu af
framboðsfundi á Ströndum og hvað hann var hissa á því
hve Strandamenn tóku honum vel. En skýringin reyndist
sú, að kratar þóttu þar furðuskepnur.
Guðmundur Bjamason kom við í óformlegri heimsókn
og Ingibjörg Pálmadóttir leit inn áður en hún tók
skóflustunguna. Hafði hún á orði á eftir að hún hafi ekki
búist við að þrengslin væru svona mikil enda sýndist mér
hún einbeitt á svip þegar hún beitti skóflunni.
Ég er nú kominn að lokum þessa erindis. Fastir fl)úar í
umdæmi heilsugæslustöðvarinnar vom 2238 hinn 1.
desember sl. og svo eru skólanemendumir á Laugarvatni.
Þá eru hér mestu sumarhúsabyggðir landsins og voru
sumarhúsin 2484 talsins 28. mars sl. samkv.
upplýsingum byggingarfulltrúa að ólgeymdum 340
föstum hjólhýsum.
Enn skal bent á fjölmennar ferðamannaleiðir um þessar
sveitir svo sem að Gullfossi og Geysi og má segja að
hingað austur séu þjóðflutningar um helgar. Það em því
margir, sem þurfa læknis við og starfsfólkið þarf ekki að
kvíða atvinnuleysi.
En nú em tímamót með nýrri heilsugæslustöð til að
veita þjónustu og húsakostur verður að teljast orðinn
góður þar sem fyrir voru íbúðir fyrir báða læknana og
hjúkrunarforstjórann og afleysingaíbúð.
Hús og tæki eru góð og nauðsynleg, en mest veltur þó
á hinum mannlega þætti, hæfileikum og þekkingu lækna
og annars starfsfólks til að lækna fólk og hjúkra og
fyrirbyggja sjúkdóma.
Ég hef orðið var við að íbúar í umdæmi
heilsugæslustöðvarinnar eru mjög ánægðir með þá
heilbrigðisþjónustu, sem þeir fá, og er sannfærður um að
þessi góða þjónusta og það öryggi sem hún veitir, á
góðan þátt í að í þessum sveitum hefur mannlíf og
búskapur blómgast, svo að þær em í dag einhverjar þær
búsældarlegustu á landinu.
Ég er sannfærður um að svo verður áfram.
Gleðilega hátíð. Jón Eiríksson.
Litli - Bergþór 22