Litli Bergþór - 01.03.2007, Blaðsíða 4
Formannspistill
Ég ætlaði mér að yrkja
einhvern fallegan brag
en þegar til á að taka
ég tími því ekki í dag.
Já, svo yrkir Jónas Hallgrímsson í ljóði sem hann
nefnir „Ég ætlaði mér að yrkja“. Þessi vísa kom mér í
hug þegar ég settist til þess að skrifa formannspistil.
Penninn ekki viljugur og hugurinn ekki á flugi.
Samvera foreldra og barna - skiptir hún máli? Mörg
eru þau þroskatímabil í uppvexti bama til unglingsára
og síðar til fullorðinsára sem eru vissulega mjög mikil
nauðsyn að foreldrar séu til staðar, er ég t.d. að hugsa
um tímabil sem mætti kalla spurningatímabil þegar
barnið fylgir foreldri sífellt eftir og spyr um alla
heimsins hluti jafn mögulega sem ómögulega og
leitast þannig við að bæta í sinn viskubrunn. Þá ríður
á að foreldrið sýni skilning og hafi þolinmæði til þess
að leysa úr spurningum dagsins eftir bestu getu.
Vörumst eftir fremsta megni að forgangsraða á kostn-
að samvista við börnin okkar. Það er dýrmætur tími
sem glatast ef börnin verða alltaf að bíða þar til tími
gefst, hann verður ekki alltaf settur á bið. Uppvaxtarár
barnsins líða mjög hratt. Þau nánu tengsl sem þannig
skapast með góðum samverustundum frá unga aldri
bamsins er sá þáttur sem mjög miklu máli skiptir í lífi
hvers einstaklings. Það eru jú svo margir áhrifavaldar í
lífi bama og ungmenna í dag, þau lifa í miklum hraða.
Þau þurfa að höndla margt sem foreldrar þeirra hafa
jafnvel enga hugmynd um og em að takast á við hluti
sem vora ekki til þegar foreldramir voru ungir. Þess
vegna er áríðandi að byggja upp sterka einstaklinga
með góða sjálfsmynd svo þau hafi forsendur til að taka
skynsamlegar ákvarðanir, hafna vondum hlutum, en
næra þá góðu og uppbyggilegu.
Ég verð að bera á báru
það besta sem mér er veitt
og seinast sofna ég frá því
og svo fær enginn neitt.
Kveðja,
Guttormur Bjarnason, formaður JJmf. Bisk.
Viðgerðir á búvélum
og öðrum tækjum í landbúnaði.
Bifvélaviðgerðir - Smurþjónusta
Olíusíur í bíla og dráttarvélar
Litli Bergþór 4