Litli Bergþór - 01.03.2007, Blaðsíða 19
Stjórn og nefndir Björgunarsveitar Biskupstungna
Formaður Helgi Guðmundsson, Hrosshaga.
Gjaldkeri Sigurjón Pétur Guðmundsson, Miðholti 1
Ritari Axel Sæland, Espiflöt.
Varaformaður Kristinn Páll Pálsson, Brekkuskógi.
Meðstjórnandi Guðjón R. Guðjónsson, Miðholti 3.
Bílanefnd
Einar Guðmundsson (formaður), Kistuholti 9.
Snorri Geir Guðjónsson, Litlu-Tjöm.
Ingvi Þorfinnsson, Spóastöðum.
Oskar Kristinn Boundy, Kistuholti 14a.
Guðjón R. Guðjónsson Miðholti 3.
Húsvörður
Sveinbjöm Guðlaugsson, Daltúni.
Sleðanefnd
Kristinn Páll Pálsson (formaður), Brekkuskógi.
Sólon Morthens, Hrosshaga.
Jón Agúst Gunnarsson, Hrosshaga.
Brynjar S. Sigurðsson, Heiði.
Oddur Pálsson, Brekkuskógi.
Jón Agústsson, Lyngási.
Helgi Guðmundsson, Hrosshaga.
Unglinganefnd
Heiða Pálrún Leifsdóttir (formaður), Espiflöt.
Axel Sæland, Espiflöt.
Þórey Helgadóttir, Hrosshaga.
Kristnihátíð á Þingvöllum í júlí 2000
Eftir Hilmar Pálsson frá Hjálmsstöðum í Laugardal
Er nú síðan árþúsund af eilífðinni
að Þorgeir lá með þungu sinni
þögull undir bolaskinni.
Tuttugu og fjóra tíma þar í transi lá hann,
Krist og Oðinn saman sá hann,
soldill kvíði tók að þjá hann.
Kjarkinn, þrek og kraft úr sálu karlinn missti,
og þegar Oðinn hausinn hristi
hallað' ann sér að Jesús Kristi.
Fálmaði í hausinn, fletti af skalla flösu grárri.
Hugmynd náði hvergi klárri
hvor þeirra mundi vera skárri.
Rámur síðan reis hann upp af rekkju flatri
og lýst'yfir á Lögbergssetri
að líklega væri Kristur betri.
Heiðnir fengju heimullega hross að éta,
og sér til mæðu og meinabóta
mættu þeir í leyni blóta.
Heimilt skyldi í harðindum að henda út bömum.
Af því hrifust heiðingjarnir,
sem höfðu ei aðrar getnaðarvamir.
Þessu játti þingheimur með þanka glöðum
en klerkdómur með kænskuráðum
kosti þessa sveik þá bráðum.
Síðan hafa klerkar kennt oss kristin fræði
í lausri ræðu og rímuðum ljóðum,
(raunar misjafnlega góðum).
Kristnihátíð haldin skyldi á helgum völlum
og safna líkt og fé af fjöllum
Frónbúum svo til öllum.
Vurðu þarna vonbrigði hin váglegustu,
þrettán mættu þúsund flestir
þar af starfsmenn fleiri en gestir.
Höfuðklerkar hug sinn illa hamið gátu
í skyndibræði skást þeir mátu
að skamma þá sem heima sátu.
Ýmsum þótti engri hlýju anda frá þeim
því skæðar voru skammir hjá þeim
og skuggalegur svipur á þeim.
Siðabótarsjóferð þessa svona fórum
hrekjumst við enn á heljarbárum
heiðnari en fyrir þúsund árum.
Haldist þessi þróun mála þúsöld næstu,
að því líkur lúta í flestu
að Lútherstrúin hverfi að mestu.
Herrann prýði hirði sína hyggja nægri
gefi þeim einnig giftu fegri
og gerir þá aðeins skemmtilegri.
Hætta skal nú harmagráti og hugarvíli
„Skrúfara rjúfara skrokk í væla
skrattinn má nú ljóði hæla“.
Heimild: Vor siöur, 16. árg. 1. tbl. 2007.
Utgefandi: Ásatrúarfélagið.
19 Litli Bergþór