Litli Bergþór - 01.03.2007, Qupperneq 9

Litli Bergþór - 01.03.2007, Qupperneq 9
um gluggann og sér pabba sinn og annan mann hlaupa sinn í hvora áttina frá húsinu. Jón sefur allan seinnipartinn. Þegar hann vaknar heyrir hann að mamma hans er komin heim. Hann ætti að vera að fara á æfingu en hann langar ekki til að hitta mömmu sína eða fólk yfirleitt. Þess vegna gerist hann duglegur og fer að læra heima. Um kvöldmatarleytið bankar mamma hans á herbergisdyrnar og opnar svo. „Heyrðu, Jón minn, ég var að tala við kennarann þinn, hann sagði að þú hefðir horfið úr skólanum eftir hádegið. Af hverju varst þú ekki í skólanum?“ „Mér leið illa svo ég fór heim. “ „Hvað, ertu eitthvað lasinn? “ „Nei, nei, bara með hausverk“ „Af hverju sagðir þú engum í skólanum frá því? “ „Æi, gleymdi því og nennti því ekki.“ svarar hann ekkert mjög sannfærandi. „O.K. komdu að borða.“ Það sem eftir er kvölds og fyrri part dagsins á eftir er flugan í Jóni frekar róleg. Hann fer í skólann og heldur sig við söguna um hausverkinn. Það er ekki fyrr en í síðasta tíma sem flugan fer á stjá. Þá situr Jón og horfir út um gluggann og hlustar með öðru eyranu á malið í enskukennaranum. Þá gefst honum tími til þess að hugsa um ömurleika tilverunnar. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að hann sé mjög mikill. Eftir skóla fer Jón í langan göngutúr út fyrir bæinn. Þegar hann fer fram hjá síðustu húsunum koma tár. Hann ætlar ekkert að gráta, það eru bara stelpur sem gráta. Það að hann fer að gráta sannfærir hann um að hann sé aumingi. Aumingi sem er ekki neitt, ekki góður í neinu og öllum er sama um. Kannski ætti hann bara að láta sig hverfa, reka síðan á land eftir nokkra daga. Þá losnaði hann við áhyggjur þessa heims. Kannski er sagan um himnaríki lrka sönn. Þá gæti hann lifað þar í vellystingum og horft á alla vitleysingana sem eru að reyna að tóra á jörðinni. Líklegra væri þó að hann færi til helvítis. Þar er þó að minnsta kosti hlýtt. Þó er Jón nær viss um að hvorugt reynist satt, maður bara deyr og eftir það verður ekkert, þótt það sé erfitt að ímynda sér það. Hann hugsar eitthvað á þessa leið lengi en endar þó á því að fara heim. Jón reynir að láta á engu bera þegar hann kemur inn. „Viltu ekki koma að borða? “ kallar mamma hans innan úr eldhúsi. „Eg er ekkert svangur. “ svarar Jón og fer inn í herbergi. Þegar hann er búinn að læra fer hann að horfa á sjónvarpið. Það er bara Kastljósið í sjónvarpinu. Einhver ferlega hommalegur maður að tala um réttindi samkynhneigðra. Jón ætlar að fara að slökkva en hikar svo, hvar hefur hann séð þennan mann áður? Honum tekst ekki að muna það svo hann slekkur og ætlar á klósettið. Þegar Jón kemur fram situr pabbi hans og horfir hugfanginn á sjónvarpið. Hann hrekkur upp og slekkur á sjónvarpinu, undarlega vandræðalegur. „Helvítis hommaþrugl er þetta endalaust, “ tautar hann og reynir að vera hneykslaður. Þá man Jón hver maðurinn er. Þegar Jón er að fara inn í herbergi aftur hringir heimasíminn. Jón svarar. „Halló.“ „Já, halló,“ svarar kvenmannsrödd í símanum. „Er Bergþóra við?“ „Bíddu aðeins,“ svarar Jón og kallar: „Pabbi, hvar er mamma?“ „Hún er úti að borða með vinnunni sinni,“ svarar pabbi hans. „Hún er ekki við, “ segir Jón í símann. „Allt í lagi, þetta er Fanney héma sem vinnur með henni, hún svarar ekki í gemsann sinn og,“ja, ætli ég verði þá ekki bara að tala við hana á morgun, “ er svarað. „Bíddu, er ekki allur vinnustaðurinn úti að borða?“ „Ha nei, ég vissi ekki af því, nei það getur ekki verið.“ „Umm, skrítið, jæja, bless.“ „Já bless.“ 6. bekkur flutti leikrit um hringrás blóðsins um mannslíkamann. Gabríella Mist, Skúli, Sindri Már, Brynhildur, Sigrún Ásta, Þorsteinn, Áslaug Og Ásta. (Ljósmyndari Þuríður Ágúsla Sigurðardónir) Jón leggur á og er meira en lítið hissa. „Þetta var einhver Fanney úr vinnunni hennar, hún segir að vinnan sé ekki að fara út að borða og að hún svari ekki í gemsann sinn,“ segir hann við pabba sinn. „Mmmm, skrítið, kannski ég prófi að hringja í hana,“ svarar pabbi hans. Jón fer aftur inn í herbergið sitt og fer að hugsa. Hvað ætli mamma hans sé að gera? Stuttu seinna heyrir hann pabba sinn keyra í burtu. Seint um kvöldið koma foreldrar hans heim. Hann er nokkuð viss um að það á ekki að geta farið framhjá neinum í bænum því þau skella hurðum, öskra og æpa hvort á annað. Jón verður stjarfur þegar að hann skilur hvað er um að vera. Flugan verður óð. Þegar allt kemst í ró laumast hann fram í eldhús, mjög varlega því að mamma hans er sofandi í sófanum, tekur búrhníf og laumast aftur inn í herbergi. Bergþóra hefur ekki sofið mjög fast því að hún vaknar við dynkinn. Aðkoman er ógeðsleg, það er blóð út um allt. Jón rankar við sér í smá stund á sjúkrahúsinu. „Helvítis flugan,“ er allt sem hann nær að segja. Flugan var búin að sannfæra Jón um að enginn myndi 9 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.