Litli Bergþór - 01.03.2007, Side 23

Litli Bergþór - 01.03.2007, Side 23
möguleika á að verða við erindinu, enda ekki gert ráð fyrir þessu á fjárhagsáætlun 66. fundur sveitarstjórnar 28. nóvember 2006 Mœtt voru: Margeir Ingólfsson oddviti, Drífa Kristjánsdóttir, Jens Pétur Jóhannsson sem varamaður Sigrúnar Lilju Einarsdóttur, Jóhannes Sveinbjörnsson, Þórarinn Þorfinnsson, Rósa Jónsdóttir sem varamaður Snœbjörns Sigurðssonar og Kjartan Lárusson. Einnig var mœttur Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð. Fundargerð bvggðaráðs til staðfestingar: Fundargerð 62. fundar, dags. 28. nóvember 2006. Fram kom tillaga um að breyta ákvörðun byggðaráðs varðandi lið 4.5 í fundargerðinni á þá lund að Frjálsíþróttaráð HSK verði styrkt um kr. 100.000 til kaupa á rafmagnstímatökutækjum. Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum (DK, KL, JS, JPJ), 1 á móti (MI) og 2 sátu hjá (ÞÞ, RJ). Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2006 ísíðari umræða). Tillaga að breytingu á fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar fyrir árið 2006 tekin til síðari umræðu. Aætlunin gerir ráð fyrir að heildartekjur samstæðu Bláskógabyggðar, þ. e. sveitarsjóðs og félaga í eigu sveitarfélagsins verið kr. 612.395.000. Rekstrargjöld samstæðu ásamt afskriftum kr. 560.126.000. Fjármagnsgjöld áætluð kr. 38.328.000. Rekstrarniðurstaða samstæðureiknings samkvæmt áætlun verður jákvæð að upphæð kr. 13.941.000. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar ársins vegna byggingaframkvæmda, gatnagerðar, fráveitu og vegna kaupa á athafnalóðum verði nettó kr. 65.100.000. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2006. Fjárhagsáætlun 2007 (fvrsta umræða'). Lögð var fram fyrstu drög að fjárhagsáætlun aðalsjóðs Bláskógabyggðar. Um er að ræða rammaáætlun sem lögð hefur verið til grundvallar áætlunarvinnu stofnana sem heyra undir aðalsjóð. Ekki hafa A- og B-hluta stofnanir lokið forvinnu við áætlanagerð, en reiknað er með því að fyrstu drög að áætlun stofnana verði tilbúin að viku liðinni. Almennar umræður urðu um forsendur fjárhags- áætlunarinnar. Fram lögðum gögnum vísað til næstu umræðu sveitarstjómar um fjárhagsáætlun 2007. 67. fundur sveitarstjórnar 6. desember 2006 Mœttir voru sveitarstjórnarmenn nema Sigrún Lilja Einarsdóttir en fyrir hana Jens Pétur Jóhannsson og Jóhannes Sveinbjörnsson en fyrir hann Sigrún Reynisdóttir einnig Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð. Akvörðun um álagning gjalda fvrir árið 2007. Lögð var fram eftirfarandi tillaga að álagningarprósent- um, afsláttum og gjaldskrám fyrir árið 2007: 1) Alagningarprósenta útsvars verði 13,03% af útsvars- stofni. 2) Álagningarprósenta fasteignagjalda verði; A - 0,6% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í land- búnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum. B - 1,2% af fasteignamati allra annarra fasteigna með tilheyrandi lóðum, þó að undanskildum fasteignum í 0 flokki. C - 0,88% af fasteignamati sjúkrastofnana skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna, að meðtöldum lóðum og lóðar- réttindum. Afsláttur af fasteignaskatti til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri, eða 75% öryrkjar eða meira, og eiga lögheimili í viðkomandi fasteign fer eftir samþykkt um afslátt af fasteignaskatti sem samþykkt var af sveitar- stjórn Bláskógabyggðar 14. mars 2006. 3) Vatnsgjald verði 0,3% af fasteignamati eigna sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins, sbr ákv. 7. gr. laga nr. 81/1991 m.br.skv ákv. 3. gr. laga nr. 149/1995. Hámarksálagning verði kr. 18.190 á sumarhús og íbúðarhús. Fyrirtæki sem safna vatni í eigin miðlun fái 30% lækkun á vatnsskatti. 4) Álagning vegna meðhöndlunar úrgangs, þ.e. sorp- hirðing og sorpeyðing verði kr. 9.900,- á íbúðarhús, kr. 7.300 á sumarhús og kr. 21.900 á lögbýli og smárekstur. Með þessu gjaldi á lögbýli og smárekstur er innifalinn einn gámur á ári að lögbýli eða starfsstöð smáreksturs (hámark stöðutíma gáms er 3 dagar). Aukagjald fyrir að sækja rusl heim að húsum á Laugarvatni verði kr. 10.300 innheimtist með fasteignagjöldum. Að öðru leyti verða lögbýli/fyrirtæki að sjá sjálf um geymslu, flutning úrgangs og meðhöndlun úrgangs til móttökustöðvar og greiða fyrir þá þjónustu skv. gjaldskrá flutningsaðila og móttökustöðvar (Sorpstöðvar Suðurlands). 5) Holræsagjald vegna kostnaðar við fráveitukerfi/seyru- losun í Bláskógabyggð verði kr. 4.500 á hvert íbúðarhús, sumarhús og fyrirtæki sem ber samkvæmt byggingar- skilmálum að hafa rotþró eða vera tengt viðurkenndu fráveitukerfi. 6) Lóðarleiga 0,7% af lóðarmati. Gjöld liða 2, 3, 4, 5 og 6 verði innheimt með 5 gjalddögum mánaðarlega frá 15. febrúar 2007. Eindagar eru 30 dögum eftir gjalddaga. Fulltrúar T-listans komu fram með breytingartillögu á 2. lið tillögunnar svo hljóðandi: 2) Álagningarprósenta fasteignagjalda verði; A - 0,55% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í land- búnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum. Breytingartillagan var borin upp og felld með 4 atkvæðum á móti (MI, ÞÞ, JPJ, SS) og 3 með (DK, KL, SR). Síðan voru fyrstu tveir liðir tillögunnar bornir sérstaklega upp til afgreiðslu. 1. liður tillögunnar, samþykktur samhljóða. 2. liður tillögunnar: A - liður samþykktur með 4 atkvæðum (MI, ÞÞ, JPJ, SS) og 3 á móti (DK, KL, SR). B - liður samþykktur með 6 atkvæðum (MI, ÞÞ, JPJ, SS, DK, SR) og einn sat hjá (KL). C - liður samþykktur samhljóða. Aðrir liðir tillögunnar, 3. til 6. liður bornir upp í einu lagi og samþykktir samhljóða. Fjárhagsáætlun Bláskógabvggðar 2007 (önnur umræða). Lögð voru fram fyrstu drög að fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar. Almenn umræða varð um fyrirliggj- andi áætlun. Sveitarstjóri gerði grein fyrir óvissuþáttum varðandi forsendur áætlunar, sem verið er að vinna í þessa dagana. Áætluninni vísað til næsta fundar sveitar- stjórnar. Jafnframt var samþykkt samhljóða að sveitar- stjóri kanni möguleika varðandi lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga í tengslum við lokavinnu við fjárhagsáætlun 2007. 23 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.