Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 13

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 13
FORELDRABLAÐIÐ 13 amir tali við börnin, og mjög áríðandi og áhrifamikið að segja þeim sögur og kenna þeim vísur og kvæði. Má byrja á því mjög snemma og fer þó auð- vitað eftir því, hve fljót börnin eru til máls og annars þroska. Ég hef t. d. vitað 5—7 ára börn heimta kvöld eftir kvöld, að þeim væru sagðar ákveðnar sögur úr Snorra-Eddu, eftir að þau höfðu heyrt pabba sinn segja þær einu sinni. Sama máli gegnir um ýmislegt fleira úr forn- sögum vorum og þá þjóðsögur og ævin- týri margs konar, og er þar af miklu að taka og erfitt að gefa nákvæmar for- skriftir. Stundum er á það minnst og talið sjálfsagt, að foreldrar hafi ekki tíma til þess nú á dögum að tala við börn sín, segja þeim sögur, kenna þeim kvæði. Þetta er fjarstæða, sem enginn skyni- borinn maður ætti að bera sér í munn. Mér er spurn: hafa menn þá tíma til að matast og draga lífsanda af lofti? At- vinnu sumra, t. d. sjómanna, er að vísu þannig háttað, að þeir eru að heiman tlmum saman. En verða þá ekki sögurnar þeirra, ef vel er til þeirra vandað, þeim mun hugstæðari, þegar þeir koma heim úr löngum og áhættusömum ferðum? Hitt er annað mál, að enginn getur búizt við að ná miklum árangri í þessum efn- um og heldur ekki meðan börnin eru ung, nema leggja á sig nokkuð erfiði. Menn verða að lesa talsvert, leggja sig í líma við að vanda málfar sitt, leitast við að laða sig eftir áhuga barnanna, sem breyt- ist eftir aldri o. s. frv. En ég fullyrði, að hvert foreldri, sem byrjar á þessu starfi í alvöru finnur launin í sjálfu starfinu goldin með rentu og renturentu og lifir heima hjá sér, eða í gönguför með barni sínu, marga skemmtistund á borð jJtforciimM'aðtð ER S TÆRSTA BLAÐ LANDSINS. ER LANG BEZTA FRÉTTABLAÐIÐ. • ER FJÖLBRE YTTA S TA BLAÐIÐ. Allskonar: ÚTGERÐARVÖRUR MÁLNIN GARVÖRUR VÉL AÞÉTTIN G AR VERKFÆRI VERKAMANNA- FATNAÐUR SJÓMANNA- FATNAÐUR REGNKÁPUR Bezt og jafnan ódýrast hjá TERZLUN O. ELLINGSET H.F. Síiniiefni: Ellinssen, Iteykjavík

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.