Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 15

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 15
FORELDRABLAÐIÐ 15 búast við því, að þegar á barnsaldri hafi það gengið of seint til hvílu, og haldist sú venja enn. „Smekkurinn, sem kemst í ker, keíminn lengi á eftir ber“. Ákvæði um útivist barna í Reykjavík, hafa verið auglýst i blöðum bæjarins nú síðast í vetur. Reglur þessar er að finna í 19. gr. Lögreglusamþykktar Rvíkur. Reglur þessar virðast mér svo sann- gjarnar, og kröfum í hóf stillt, að okkur beri, allra hluta vegna, að fylgja þeim, að jafnaði. Heimili og skólar ættu að kynna börnum þessi ákvæði. Hvað mælir með því, að börn, yngri en 12 ára, séu úti á götum og strætum eftir kl. 8 á kvöldin vetrarmánuðina? Ég held, að þó, að í sveit væri, hafi börn á því aldursskeiði, yfirleitt ekki verið úti að leikjurn eða starfi, lengur á vetrum. Sama er að segja um börn 12—14 ára. Það virðist allt mæla með því, að þeirra útivist sé lokið kl. 10 á kvöldin. Mörg þeirra þurfa, vegna skólagöngu, að fara á fætur kl. 7y2 að morgni. Það er sama, hvort við lítum á þetta mál með líkam- lega eða andlega heilbrigði barnsins í huga. Svefn fyrri hluta nætur er öllum holl- ari, segja heilsufræðingar. Oft er rætt og ritað, einkum nú á siðustu árum, um eflingu heimilismenningar í landi hér. Gott er á það að hlýða og um það að lesa, en bezt held ég væri eitthvað að gera í þessu efni. Heimilin þurfa I eins og kostar er að hafa traust og gott samband við börn sín. Heimilin þyrftu flest að vera þannig, að börnunum þyki gott að vera heima. Það skal viðurkennt, að hér kemur eitt stórt atriði ásamt fleirum til greina, það er húsnœðið. Mér virtist í vetur, er ég athugaði nokkuð V í N 1 JR ER EEZTA DAGBLAÐIÐ Ódýrasta dagblaðið Aðeins 4 krónur á mánuði Bezta fréttablaðið Geríst áskrifendur Sími 1660 útivist barna í bænum, að minnst væru börn seint á ferli í þeim hlutum bæjar- ins, sem betra er húsnæði í: Þó er annað, sem ekki er minna um vert, hið andlega samband barnsins við heimilið. Gott samkomulag, skilningur á athöfnum og áhugaefnum barnsins, þarf að ríkja. Þá munu heimilin verða máttug til þess að vernda börn og unglinga frá óhóflegri útivist og göturápi, sem hefur í flestum tilfellum skaðvænleg áhrif á andlega og líkamlega hreysti þeirra. • Engin tæmandi rök eru færð • fyrir þessu hér, en tilefni gefast nú næg á síðustu tímum ,til þess, að við athugum þessi mál með alvöru og í einlœgni. Okkur ber skylda til þess, hvert á sínum stað, að skapa fegurð og samræmi í bæj- arlífið, svo að hér verði á allan hátt gott að vera fyrir börn og unglinga. Ég vildi með línum þessum benda á eitt atriði þessu til stuðnings, að útivist barna hér í bæ sé stillt í hóf, þeim sjálf- um og heimilum þeirra til velfarnaðar. Jónas Jósteinsson.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.