Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 35
FORELDRABLAÐIÐ
35
Liösr iiiii fræðsln barna.
Foreldrablaðinu þykir hlýða að birta
hér nokkur ákvæði úr fræðslulögunum
og reglugerðum skólanna varðandi skóla-
skyldu og fleira. Það er ekki laust við,
að sumum foreldrum muni harla óljóst,
hvað eru gildandi lög í því efni, er þeir
jafnvel taka skólaskyld börn úr skól-
unum og ráðstafa þeim á sitt eindæmi.
Lög um fræðslu barna.
1. gr.
Öll börn á landinu eru skólaskyld á
aldrinum 7—14 ára. Skólaskyldan hefst
1. maí það almanaksár, sem barnið verð-
ur fullra 7 ára, og endar með fullnaðar-
prófi það ár, sem það verður fullra 14 ára.
3. gr.
Skólanefnd má veita undanþágu frá
skólavist, ef trygging þykir vera fyrir því,
að barn fái lögmælta fræðslu þrátt fyrir
undanþáguna.
Skólanefnd má veita heimild til fulln-
aðarprófs börnum, sem eru yngri en 14
ára, þegar tryggt er, að barnið njóti
framhaldsfræðslu til fulls 14 ára aldurs.
Heimilt er skólastjóra, í samráði við
fræðsluráð eða skólanefnd í kaupstöðum.
að undanþiggja börn, sem ekki taka
fullnaðarpróf, skólavist eftir 1. maí
vegna sumardvalar, enda sé kunnátta
barnsins og aðrar ástæður ekki til fyrir-
stöðu.
Skólanefnd varnar þeim börnum
skólavistar, sem að dómi skólastjóra og
kennara eru óhafandi með öðrum börn-
um sakir siðleysis eða einstakrar óhlýðni.
Þau börn eru undanþegin skólaskyldu,
sem samkvæmt vottorði læknis skortir
andlega eða líkamlega hæfileika til að
stunda nám með öðrum börnum.
8. gr.
Nú óhlýðnast framfærandi skólaskylds
barns fyrirmælum þessara laga, og varð-
ar það dagsektum, 2—5 kr., eftir úrskurði
valdsmanns. Sé um alvarlegt brot að
ræða, getur skólastjóri skotið málinu til
barnaverndarnefndar tilfrekari aðgerða.
Reglugerð
fyrir barnasJcóla l ReyJcjavík.
10. gr.
Börnin skulu vera úti í stundahléum,
þegar veður leyfir að dómi kennara.
Valdi nemandi skemmdum á skólan-
um eða því, sem honum er viðkomandi,
er framfærendum hans skylt að bæta
skaðann.
11. gr.
Börn skulu hafa með sér bækur og
önnur áhöld, sem með þarf, eftir fyrir-
mælum kennara. Nú verður misbrestur
á því, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli kenn-
arans, skal hann þá leita til skólastjóra,
en skólastjóri til skólanefndar og er
henni skylt að bæta úr þessu. Kostnað-
ur, sem af þessu leiðir, skal greiddur úr
bæjarsjóði, sem önnur gjöld til skóla-
halds, en endurkröfu á hann á hendur
framfæranda barnsins, sé efnaleysi ekki
um að kenna.
13. gr.
Geri barn sig sekt um ósæmilegt at-
hæfi eða brjóti í bága við settar reglur
skólans og fyrirskipanir og láti ekki skip-