Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 27
FORELDRABLAÐIÐ
27
stundvísi eru gerðar út frá því sjónarmiði, að
allt séu þetta fagrar dygðir, sem beri skilyrð-
islaust að efla. Það væru líka svik við þá for-
eldra, sem alið hafa börn sín upp við þessar
dygðir, ef skólinn yrði til þess að brjóta þær
niður. Þau börn og þau heimili, sem brjóta þess-
ar reglur, verða að skilja það, að þau baka sér
vanþóknun skólans. Kurteist barn, hreinlátt og
stundvíst á siðferðilegan rétt til þess að krefjast
hins sama af öðrum börnum. Þessar dygðir
geta ekki þrifizt nema í umhverfi, þar sem þær
eru almennt viðurkenndar. Til hvers er t. d.
fyrir eitt barn að koma hreint, þar sem allt
veður í sóðaskap? Skólinn verður því að vernda
snyrtimennin gegn sóðunum. Hann verður að
snúa alverlega máli sínu til þeirra heimila, sem
vargar eru í véum í þessum efnum. Sendiö
börnin lirein og snyrtileg í skólann, leggið ríka
aherzlu á kurteisi og Jylgizt með stundaskrán-
um og minnið börnin á, hvencer þau eiga að
sœkja skólann.
Húsnæðið og leikvöllurinn.
Þrengslin, bæði úti og inni, eru höfuðvanda-
mál þessa skóla. Þau eru hinn versti hemill
á allri starfsemi hans. Skólahúsið var aldrei
ætlað nema 600—700 börnum og það eftir kröf-
um löngu liðins tíma. En nú eru hér sem sé
1500 börn. Vegna þrengslanna verður skóla-
tíminn svo óhentugur fyrir börnin og dagurinn
allur sundurslitinn. Vegna þrengslanna er ekki
heldur hægt að hafa neina félagsstarfsemi með
börnunum, sem þó væri mjög nauðsynleg. Vegna
þrengslanna á leikvellinum er ekki hægt að hafa
skipulagða leikstarfsemi. Þar lendir því allt í
þvögu og árekstrum. Góður leikvöllur mundi
auka mjög ánægju og yndi barnanna af skóla-
vistinni, í stað þess sem stundahléin eru jafn-
vel sumum þeirra nú til ama og leiðinda. — Þá
hefði skólinn nauðsynlega þurft að fá sundlaug
til umráða í nágrenni sínu. Eins og sundnáminu
er nú fyrir komið, verður það til þess að eyði-
leggja ótrúlega mikið af annarri kennslu.
Skólastjórinn.
Laugarncsskólinn
Nemendur.
Við tal á börnum í deildum skólans um miðjan
desember reyndust að stunda nám í skólanum
§ko
á börn,
unglinga
og fullorðna,
verður bezt að kaupa
hjá okkur.
Verksmiðj uútsalan
GEFJUN — IÐUNN
Aðalstræti
Höfum oftast fyrirlíggjandi:
Hanzkaskinn, Bókbandsskinn,
Húsgagnaleður, Töskuskinn,
Vatnsleður, Beltaleður.
Saum margar teg., Tvinna og
margs konar efnivörur til skó-
smíða. Ennfremur: Skóáburð,
bón, leðurfeiti.
Leðurverzlun
Magnúsar Víglundssonar
Garðastræti 37 — Pósthólf 876
Sími 5668. — Reykjavík. ,