Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 42

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 42
42 FORELDRABLAÐIÐ Foreldrar! Það er vísindalega sannað, að Freyjn snkknlaði er mjög hollt og nærandi — í skammdeginu ættuð þér þess vegna að gefa börnum yðar Freyju súkkulaði daglega, svo að þau fái notið hinna dásamlegu áhrifa þess. öðrum, mannlegum verum óviðráðanlega. Þau glíma við höfuðskepnurnar og breyta veðri með einni handaútréttingu. Og mikil er smæð þeirra fullorðnu, þegar barnið er í slíkum ham. Þriggja ára snáði var með pabba sínum úti á hlaði og varð, af einhverjum ástæðum, skapbrátt við hann. Hljóp drengur þá öskrandi inn í fordyri hússins og lokaði rækilega á eft- ir sér. Þegar faðir hans gekk inn skömmu seinna, stendur strákur stífur uppi við vegg og mælir til föður síns svohljóðandi, af miklum þjósti: „Ha e loka, havvu út“. (Það er lokað, farðu út). Að síðustu skal svo minnt á, að það er ekki aðeins smábarnið, sem leikur sér, heldur einnig skólabarnið og ung- lingurinn. Og rneira að segja fullorðna fólkið leikur sér og hefur gott af því. En við eldri ævistigin er leikurinn ýmist skipulögð dægradvöl eða þá iþrótt. íþróttafrömuðir hafa borið gæfu til að taka leikinn í þjónustu notadrjúgrar líkamsþroskunar. Dæmin hér að framan ættu að nægja til þess að sýna, að frjálsir og heil- brigðir leikir hafa ómetanlegt þroska- gildi, sem ekki verður bætt upp með öðru. Leikurinn og leikskilyrði fyrir barnið eru þvi jafnnauðsynleg og maturinn, sem það nærist af. Leikurinn er, lengi vel, hin eina starfsemi barnsins. Leikur- inn vekur áhuga, kallar fram krafta og stuðlar að því að beina þeim á heppi- lega leið. Þannig beizlast oft dýrmæt orka, sem verður barninu lyftistöng á þroskabraut þess. í leiknum lærir barn- ið að þekkja hlutina og samstilla sig umhverfinu. Að leik meðtekur það

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.