Foreldrablaðið - 01.02.1943, Side 17

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Side 17
FORELDRABLAÐIÐ 17 höndum saman um það, að orð og gerðir manna í þessu efni stangist ekki eftir- leiðis jafn fast á og áður? Enginn finnur meir til þess en kenn- arar og foreldrar, hversu takmarkaður árangur verður stundum af viðleitni þeirra og starfi. Hindranir eru svo marg- ar. Á sumu af því, sem að er, fá þeir ekki ráðið bót, því að til þess þarf vilja og orku alþjóðar. En mörgu geta þeir áorkað, og eitt er nauðsynlegt: Miklu meiri skilningur og samstarf milli heim- ila og skóla. Ef andúð er milli þessara stofnana og þær vanmeta hvor aðra, er ógæfan vís. Þá höggur sá, er hlífa skyldi. Þær verða að vera samhentar um hið veglega starf og hinn æskileg- asta árangur. Foreldrarnir verða að skilja, að kennararnir eru samherjar þeirra, en ekki andstæðingar, og kennar- ar verða að reyna að setja sig í spor for- eldranna og skilja þeirra sjónarmið. En með engu móti verður þessu komið i kring, nema með kynningu þessara að- ilja. Þeir verða að kynnast, skiptast á hugsunum, blanda geði saman og um- fram allt að læra að treysta hvor öðrum. Að sama skapi sem þeim tekst að meta hvorn annan í starfi og verða samhentir, vex starfsárangurinn og virðing alþjóð- ar. Með fullum skilningi á þessu hafa nú kennarar í Reykjavík hafið útgáfu þessa blaðs, og ættu foreldrar að virða þetta vel og sýna í móti fulla viðleitni til ein- huga samstarfs. — Á örlagaríkum tímum geta vandamál, sem varða líf, afkomu og öryggi alþjóð- ar, skyndilega risið upp og vaxið öllum öðrum málum yfir höfuð. En alla jafna og þegar til lengdar lætur, verða upp- eldis- og fræðslumál þjóðarinnar mikil- Það er nú \einhvernveginn svo, að mér finnst ég ávallt fá bezt spil,þegar eg spila á y IsleseyJiii spflin. En líklega er það nú bara af því, hve falleg þau eru. Fást í næstn biíð. Framleiðum alls konar sieinsieypuvövur H, f. Pípuverksmiðjan Reykjavík Símar 2551 - 2751 - 2851

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.