Foreldrablaðið - 01.02.1943, Side 20

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Side 20
20 FORELDRABLAÐIÐ Skógræktin »g Landnáma segir, að landið hafi allt verið skógi vaxið milli fjalls og fjöru á landnámsöld. Flestir þessir skógar eru nú eyddir að mestu, en þó eru eftir nokkrir blettir, sem sýna okkur, hvern- ig landið hefur verið útlits, og hvað við höfum misst með skógunum. Það er ekki ætlun mín að fara hér að rekja sorgarsögu íslenzku skóganna, en hitt vildi ég segja, að nú má það ekki dragast lengur, að hafizt verði handa að endurgræða skógana. Það er ekki nóg, að einstakir áhugamenn og félög beiti sér fyrir þessu máli. Öll þjóðin verður að leggjast á eitt og hefja sem allra fyrst framkvæmdir á því mikla starfi, sem hennar bíður á þessu sviði. Það er von mín og trú, að skólarnir geti lagt fram mikið og gott starf máli þessu til stuðnings. í Noregi mun það hafa verið einn lið- urinn í starfi ýmissa skóla, að nemend- urnir gróðursettu einhvern ákveðinn fjölda skógarplantna árlega. Því ættum við íslendingar ekki að gera eins? Hér í Reykjavík munu nú vera um 5000 börn á skólaskyldualdri. Það mætti öllum vera það ljóst, að ef hvert eldri barnanna gróðursetti nokkrar skógarplöntur árlega, að þá mundi margur eyðimelurinn og hraunflákinn í nágrenni Reykjavíkur skipta um svip, er tímar líða. Með þessum orðum á ég ekki við það, að það væru barnaskólarnir einir, sem ynnu þetta starf. Vissulega ættu allir ungmennaskólar á landinu að leggja hér hönd að verki. ikólarnir. Ég er viss um, að mikill meirihluti þjóðarinnar óskar þess, að þetta starf verði hafið sem fyrst. Við stöndum í mik- illi þakkarskuld við þá menn, sem hafa barizt mest og bezt fyrir skógræktinni á íslandi, en þeir hafa bara verið alltof fáir, sem hafa tekið virkan þátt í því starfi. Það, sem mér virðist fyrst og fremst vanta, er það, að til sé föst og ákveðin starfsáætlun til að vinna eftir. Þjóðin ætti að fela þeim mönnum, sem hafa haft þessi mál með höndum, að semja slíka starfsáætlun. Auðvitað gera þeir það í samráði við fræðslumálastjórn- ina, að því leyti sem starfsáætlunin Heilsan Hafið ávallt hugfast, að læknar og aðrir heilsu- fræðingar telja mjólk, skyr og aðrar mjólkur- afurðir einhverjar þær hollustu fæðutegundir, sem völ er á. — Styðj- ið og eflið íslenzka framleiðslu. —

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.