Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 22
22
FORELDRABLAÐIÐ
Hannaljs.
Á mönnum eru þrenns konar lýs, höf-
uðlýs, fatalýs og flatlús. Höfuðlúsin lifir
í höfuðhárinu og er þeirra algengust.
Fatalúsin er í nærfötunum, einkum næst
hörundinu, en flatlúsin á hárum líkam-
ans, öðrum en höfuðhárunum, og er
hún sjaldgæfust.
Fyrr á tímum héldu menn, að lýs
kviknuðu af sjálfu sér og hollt væri að
hafa þær á líkama sínum. Þetta hvort-
tveggja er hinn mesti misskilningur,
eins og flestir eru nú farnir að sjá. Lýs
kvikna aldrei af sjálfu sér fremur en
önnur dýr. Þær lýs, sem eru á manni,
hljóta því að hafa borizt þangað af
öðrum. Víða er hægt að fá á sig lýs.
Mesta þrifnaðarfólk getur fengið þær á
samkomum, með gestum, nýráðnum hjú-
um o. fl. Lýs eru til hins mesta óþrifn-
aðar og stórhættulegar heilsu manna á
margan hátt. Þær bera hættulega sjúk-
dóma mann frá manni. Útbrotatauga-
veiki, skæðasta drepsótt í styrjöldum,
berst eingöngu með lúsum. Ef hún berst
þangað, sem mikið er fyrir af lús, er
voði fyrir höndum, og mættu íslending-
ar muna það.
Lýsnar verpa eggjum. Þau eru grá
eins og lýsnar sjálfar og nefnd nit. Höf-
uðlúsin og flatlúsin límir nitina við hár-
in, en fatalúsin við fötin. Nitin er svo
fast límd, að erfitt er að ná henni nema
að leysa límið upp. Hún finnst á hár-
unum, ef strokið er eftir þeim með
fingurgómunum.
Lúsum á að útrýma jafnskjótt og
þeirra verður vart. Drengi má klippa
snöggt og hár telpna má oft skerða.
Höfuðlús og flatlús er hægt að út-
rýma með Quassia-spíritus. Hárið þarf
Eínalaug Reykjavíkur
Kemisk fatahreinsun og litun
Laugavegi 32 B • Sími 1300 - Reykjavik
Býður ekki viðskiptavinum sínum
annað en fullkomna kemiska
hreinsun, litun og pressun, með
fullkomnustu og nýtízku vélum og
efnum. Hjá okkur vinnur aðeins
þaulvant starfsfólk, sem unnið hef-
ir hver við sitt sérstarf í mörg ár.
— Látið okkur hreinsa eða lita föt
yðar, eða annað, sem þarf þeirrar
meðhöndlunar við.
20 ára reynsla tryggir gæðin.
Sent um land allt gegn póstkröfu:
Sœkjum. Sendum.