Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 24

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 24
24 FORELDRABLAÐIÐ Til foreldra um leíkfimi. Börnin ykkar iðka leikfimi í skólan- um. Til hvers, myndu sumir spyrja. Til hvers er þetta hopp og hó, er það til nokkurs gagns? Um það eru ekki allir sammála, því er nú verr. Þeir eru þó í vaxandi meirihluta, sem skilja, hve mikla þýðingu leikfimi getur haft. Eitt er víst, að flestum hörnum finnst leik- fimi skemmtileg og vilja ekki fyrir nokk- urn mun missa af einni kennslustund. Þó eru til undantekningar, slóðar, sem engu nenna og öllu gleyma. Þið hafið eflaust heyrt talað um það, að börn hafi svo mikla innbyrgða hreif- ingaþörf. Það er m. a. þessari þörf, sem þau eiga að fá svalað í leikfimistíman- um. Þau hlaupa, og þau fara í leiki, en í einum leik má margt læra, hversu ein- faldur sem hann virðist vera. T. d. læra þau að taka vel eftir, læra nákvæmni; þau læra að taka tillit til hvers annars, hlýða og fara eftir settum reglum. Þetta lærist allt svo að segja óafvitandi. Leikfimisæfingarnar eiga að stuðla að því m. a. að viðhalda hreysti og fegurð líkamans og fyrirbyggja eða jafnvel laga lýti hans, ef einhver eru, t. d. hrygg- skekkju. Bömin eru vanin á að gera allt eftir beztu getu, hvert fyrir sig, og sameiginlega að hjálpast að því, að allt gangi vel. — Við skulum nú fylgjast með börnunum 1 huganum, frá því þau koma inn í leikfimishúsið, og þangað til þau fara þaðan. Þegar börnin koma inn, heilsa þau, því að við viljum kenna þeim almenna kurteisi. (Virðist stund- um ekki veita af því). Þau afklæðast í búningsherberginu og hengja fötin snyrtilega á snaga, svo að vel fari um þau. Snyrtimennska skaðar ekki.Því næst fara þau í leikfimisfötin. Börnin raða sér tvö og tvö og ganga þannig inn í leikfimissalinn, stillt og prúð. Þau eru nú varla látin gera svo nokkra æfingu, að ekki fylgi henni hugsunin. Hvað geta þau lært af þessu? Börnin ganga í takt; þeim er sagt að horfa upp, til þess að þau megi verða frjálsmannleg og upp- litsdjörf. Ef þau eru látin hlaupa á „fjórum fótum“, þá er það bæði vegna þess, að það er styrkjandi og liðkandi, svo og vegna þess að við það hlýnar þeim. Æfingarnar eru þannig, að sumar eiga að styrkja fæturna, aðrar handleggi, bak maga, mitti o. s. frv. Jafnvægisæfingar á gólfi eða slá eru til þess, að börnin læri að hafa vald yfir líkama sinum, m. a. eru þau látin hoppa yfir áhöld, svo sem snúru, kistu eða hesta, bæði af því að það eru hollar og góðar æfingar, svo og vegna þess að þeim vex við það þor og áræði. Sérhverjum manni er nauðsynleg nokkur metnaðargirnd, hún skapast við það að keppa hvort við ann- að eða í flokkum. En allir flokkaleikir og keppni hafa og nokkurt félagslegt gildi. Síðan ganga börnin í röðum og syngja eitthvert taktfast lag, feimnin hverfur, ósjálfrátt ganga þau eftir hljóð- fallinu og frjálsmannleg með kveðju út úr leikfimissalnum. Því næst fara þau í bað og skola af sér ryk og svita. Sá, sem ekki getur farið í bað, einhverra hluta vegna, fer ekki í leikfimi. Að lokum langar mig til að beina því til foreldranna, hvort þeir vilji ekki á- minna börnin enn betur um að mæta á réttum tíma og ef þau eru lasin, að senda þá skilaboð. Enn fremur að gefa börnum sínum leikfimisföt. Telpunum hvíta léreftskjóla og skó; svo að allar verði eins klæddar Sonja B. Carlson.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.