Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 26

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Page 26
26 FORELDRABLAÐIÐ flokkur hefur í ljósböðunum ca. 2(4 mánuður, annanhvern dag. Miðbæjarskólmn Skólaárin 1941—’42 og 1942—’43. Haustið 1941 tók skólinn til starfa laust eftir miðjan október og var lokið 30. apríl 1942. Á síðast liðnu hausti hófst skóli upp úr miðjum september. Hefur því orðið bagaleg skerðing á skólastarfinu vegna hernámsins. Hafa yngstu börnin orðið þar verst úti. Og sökum þrengsla hefur ekki verið hægt að bæta þeim þenna missi. Nemendafjöldi var síðast liðinn vetur rúml. 1540. Á þessum vetri sækja nokkru færri börn skólann, eða kringum 1500. Stafar það sennilega af því, að fleira fólk hefur flutzt úr þessu skóla- hverfi í hin nýbyggðu hús í úthverfunum en hingað hefur flutzt aftur. Kennarar skólans eru 40 í föstum embættum. Einn af hinum föstu kennurum hefur legið rúmfastur á annað ár, annar hefur fengið leyfi frá störfum um tveggja ára skeið (1941—43), en í hans stað verið settur fastur kennari, og hinn þriðji hefur fengið leyfi til eins árs. — Auk þess starfa 8 stunda- og forfallakennarar við skól- ann. Fullnaðarpróf og árspróf fóru fram með venjulegum hætti síðast liðið vor. Við fullnaðar- prófið var bætt sérstöku prófi í íslenzkri mál- fræði og sömuleiðis við próf 12 ára deildanna, en það hafði ekki tíðkazt undanfarin ár. Fulln- aðarpróf stóðust 235 börn, en 23 börnum var veitt burtfararpróf. Að loknu fullnaðarprófi fóru flestar deildir í skemmti- og kynningarferðir. — Auk þess fór fram próf um miðjan vetur í höf- uðnámsgreinunum (lestri, réttritun, reikningi og skrift). Sams konar próf hefur þegar farið fram á þessum vetri í 7—10 ára deildum. Námi hefur verið hagað með svipuðum hætti og áður. Þó hefur sú nýbreytni verið gerð á þess- um vetri, að kennsla í einni 13 ára deild hefur verið færð í það horf, að ætla má, að hún nægi þeim börnum, er hana geta tileinkað sér, til þess að standast inntökupróf framhaldsskólanna. Reglur skólans. Kröfur skólans um kurteisi, snyrtimennsku og finODonðnr Pnrstninsion gullsmiður, Bankastrœti 12 ReyJcjavíJc Sími 4007 Allskonar gull- og silfursmíði. — Trúlofunarhringar ávallt fyrir- liggjandi. — Vörur sendar út um land gegn póstkröfu. Gerið svo vel og reynið viðskiptin. VERZLUNIN BRYNJA Laugavegi 29. Sími 4160. REYKJAVÍK. • SeJur allt til húsbygginga. Selur öll áhöld til trésmíðis. Selur allar málningarvörur. Selur fjölbreyttast úrval af veggfóðurefnum. Höfum fyrirliggjandi og útveg- um timbur, svo sem: Gaboon, spón, krossvið og harðvið. Út- vegum trésmíðavélar. Vörur sendar gegn póstkröfu.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.