Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 28

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Blaðsíða 28
28 FORELDRABLAÐIÐ alls 574 börn. Er þaS um hundrað börnum fleira en mest var í skólanum s. 1. vetur. Kennarar. Fastir kennarar skólans eru nú 10, auk skóla- stjóra og forstöðukonu heimavistar, en 6 stunda- kennarar starfa þar að auki við skólann í vetur. Húsnæffi skólans er nú af svo skornum skammti, að engin tök eru á því að kenna aukanámsgreinir nema að litlu leyti. Húsrúmið er það sama og verið hefur undanfarið, nema að s.l. vor fékk skólinn til afnota tvær timburstofur, sem reistar voru á lóð skólans í fyrra vetur. Stofur þessar eru bjartar og rúmgóðar. Þær eru síðar ætlaðar handavinnustofur skólans. Vonandi rætist nú bráðlega úr um húsnæði skólans, því að nú er vel á veg kominn undirbúningur að viðbyggingu við skólann. Greftri er senn lokið, svo að steypu- vinna ætti að geta hafizt innan skamms. Heimavist skólans starfar eins og að undanförnu. 12—14 böm eru í senn í heimavistinni. Börn þessi eru hér og þar úr Reykjavík, úr umdæmum allra barnaskóla bæjarins. í vistina eru valin böm, sem undan- farið hafa ekki getað stundað nám vegna heilsu- veilu. Þó er það skilyrði fyrir vistinni, að barnið sé ekki haldið neinni þeirri heilsuveilu, sem smitun geti af stafað. Námiff. Kennslan fer fram með líkum hætti og und- anfarin ár. Þó hefur heildarstarfið að nokkru leyti þokazt í nýja stefnu. Höfuðáherzlan er nú, enn meira en áður, lögð á undirstöðunámið í lestri, stíl, skrift og reikningi og þar að auki, í efri deildum, í ritleikni og málfræði. í mörg- um bekkjum skólans hefur þó verið lögð alveg sérstök áherzla á tilhögun reikningskennsl- unnar og bætt starfsskilyrði við reikningsnám- ið. Hefur stjórn skólans látið útbúa sérstök aukaverkefni í þessu skyni, sem að mestu eru sniðin eftir starfsreglum Winnetka skólans. Vinnubókagerð er nú fáskrúðugri en verið hef- ur, og er ástæða þess að nokkru leyti sú, að erf- itt hefur verið að fá góðan og hentugan vinnu- bókapappír í seinni tíð. En höfuðástæðan hefur verið, hversu húsnæði skólans er þröngt, svo að Þaff er STAÐREYND að íslenzkur ullarfatnaður hentar bezt í íslenzkri veðráttu. TTllarverksmiðjan Framtíðin Frakkastíg 8. — Sími 3061 — Reykjavík Nýjar gerðir af GOLFTREYJUM og heilum KVENPEYSUM fáum við nú daglega. Ennfremur sérlega fallegt úrval af BARNAFÖTUM. Allt unnið úr 1. flokks ensku ullargarni. Hlín Laugav. 10

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.