Foreldrablaðið - 01.02.1943, Síða 32

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Síða 32
32 FORELDRABLAÐIÐ Sælgætlskaup Nkólabarna. í hverju stundahléi koma fleiri e5a færri börn til hliSvarðar og biSja leyfis til að fara út í búð. Hvert er erindið? Að kaupa: sítrón, vínarbrauð og sælgæti. Þau kaupa ýmist eitt af þessu, tvennt, eða þrenninguna alla, allt eftir því, hve vel þau eru auruð og löngunin sterk. Þau fá sjaldan leyfi til þessara kaupa og flest sætta sig við það og afla þess heldur á leiðinni í skólann. En sælgætis- löngun sumra er svo sterk, að þau neyta allra ráða til að sleppa út af leikvellin- um og upp í búð. Það er eðlilegt, mjög eðlilegt, að börnin langi í sælgæti. En það er eigi allt gull, sem glóir og eigi allt hollt, sem vel bragðast. Sælgæt- iskaup barna hafa að minnsta kosti þrjár alvarlegar hliðar, sem hver um sig er verð rækilegrar athugunar, þótt hér sé eigi rúm til annars en rétt að vekja athygli á þeim. Ein hlið þessa er heilsu- fræðileg, önnur efnahagsleg, hin þriðja siðferðileg. Heilbrigð sál í hraustum líkama er betri eign en gull og grænir skógar. En heilsu- fræðingum ber saman um, að ein að- al undirstaða góðrar heilsu sé holl fæða, neytt í hófi og á réttan hátt, þ. e. tugg- in sem allra bezt. Á engu aldursskeiði mun þessa jafn brýn nauðsyn sem á vaxtarskeiðinu. En því miður mun sæl- gætið vera þroska barnsins neikvætt fremur en jákvætt, — nema í hófi sé neytt, munu sumir segja. En sá er gall- inn, að barninu reynist erfitt að neyta þess í hófi, hafi það á nokkru ráð. Það vitum við öll. Ég kenni í tveim bekkjum. Athugun, sem ég hef gert í þeim, sýnir, að þeir eyða um hálfu þriðja hundraði króna hvor til sælgætiskaupa á mán. Ef gera má ráð fyrir, að þessi börn séu 10 mán. ársins hér i bænum, nema sælgætis- kaup þeirra, með þessum meðaltölum reiknað, — hvorki meira né minna en 5000,00 kr. — fimm þúsund kr. á ári. Börnin undruðust þessa útkomu eigi síð- ur en ég. Og þeim skildist áreiðanlega, að nota má þessa upphæð á annan hátt og heppilegri. Hvort sem reikna má með þessu sem meðaltali eða ekki, þá er víst, að það leikur eigi á smáu hjá heildinni. Börn og unglingar borgarinnar kaupa sælgæti fyrir upphæðir, sem tugir eða hundruð- fjölskyldna gætu lifað af. Það nemur eigi miklu á hvern einstakling. En þetta eru stórar upphæðir, þegar þess er gætt, að þeim er eytt í neikvæða neyzluvöru. Um hina siðferðilegu hlið þessa máls þarf ekki að ræða. Allir vita, að við rannsókn á þjófnaðarmálum barna og unglinga hefur komið í ljós, að ósvöluð sælgætislöngun hefur oft verið orsök af- brotsins. Ég hef oft furðað mig á, hve fá börn hafa mjólk með sér í skólann, en kaupa í hennar stað gosdrykki, sem þrátt fyr- ir allt eru stórum dýrari en mjólkin og standa henni án efa óralangt að baki, hvað hollustu snertir. Þá hefur mig furðað eigi síður á hinu, að flest börn koma með sætar kökur og hveitibrauð í skólann, að ógleymdum vínarbrauðunum, sem börn eru sólgin í og kaupa mikið. Skólakostur mikils þorra barna er því sætar kökur, hveiti- brauð, sælgæti og gosdrykkir. Ég hygg,

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.