Foreldrablaðið - 01.02.1943, Qupperneq 33

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Qupperneq 33
FORELDRABLAÐIÐ 33 að allir geti verið sammála um, að á þessu þarf að verða breyting, gagngerð breyting. Að þeirri breytingu verður heimili, skóli og læknastétt að vinna sameiginlega. Og hvað skal gera? Það verður að fræða fólkið. Og þá fræðslu ber læknastéttinni að veita. Það mætti líka fela heilsufræðingi eða áhugasöm- um lækni það hlutverk eingöngu. Nær- ingarefnafræði skyldi kennd alls staðar þar, sem matreiðsla er kennd. í barna- skólum er þessa því brýnni nauðsyn, sem þær ungmeyjarnar eru fleiri, er njóta eigi annarar matreiðslukennslu en þeirr- ar, sem barnaskólinn og heimilið veitir. Það hlýtur að vera þjóðhagslega mjög mikilvægt, að verðandi húsmæður læri sem fyrst að greina milli þess, sem er hollt, einskis nýtt og óhollt, læri að þekkja næringargildi allrar almennrar fæðu og læri að matbúa hana þannig, að hún missi sem minnst og i sem rétt- ustum hlutföllum við þarfir líkamans. Á húsmæðrum hvílir að eigi litlu leyti heilbrigði þjóðarinnar, þær eiga því rétt á fræðslu, það ber að veita þeim fræðslu. Próf. Schiötz i Oslo innleiddi hinn svonefnda Oslomorgunverð, sem viður- kenndur er í Noregi og víðar: mjólk, hart brauð (úr heilhveiti), rúgbrauð, ostur, appelsína, epli eða gulrót. Er nokkur munur á þessu og: sætum kökum, hveiti- brauði, sælgæti og gosdrykkjum? Ég vona, að þessi samanburður valdi eigi misskilningi. Hann er ekki gerður af neinni hótfyndni, heldur til skilnings- auka, því að þetta er áreiðanlega miklu alvarlegra atriði en ýmsir gera sér ljóst. Væri ekki athugunarvert fyrir foreldra, hvort peli af mjólk, kjarnabrauð, sem margir munu geta bakað sjálfir, — smjör og ostur, er ekki ódýrara en sætu Klæðið soninn smekklegum föium SPART A Laugavegi 10. — Sími 3094. Allt úr gleri. Rúðugler 2,3,4,5 og 6 mm þykkt. Gróðurhúsagler Búðarrúður Hamrað gler Hrdgler Vírgler Skipsgluggagler Opalgler á borð og veggi, hvítt, svart, gult, grænt. Öryggisgler í bílrúðu Gler á búðarborð Gler í húsgögn Glerskothurðir „Facet“ gler Hurðagler Spegilgler Speglar Glerslípun & Speglagerð h.f.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.