Foreldrablaðið - 01.02.1943, Síða 39

Foreldrablaðið - 01.02.1943, Síða 39
I FORELDRABLAÐIÐ 39 Þroskagildí leíkja. „Það barn, sem ekki hefur sinnu á að leika sér, er ekki heilbrigt". (Ethel Mannin) Leikþörfin er sterkur þáttur í lífi barna. Leikir barna hafa um langan aldur, og þó einkum á síðustu árum, verið hug- fólgið rannsóknarefni sálfræðinga. Rannsóknir þessar hafa, að vonum fætt af sér ýmsar tilgátur og kenningar um tilgang leiksins, bæði sennilegar og lítt sennilegar. Og er enginn kostur á að rekja það nánar í þessari stuttu grein. En hitt mundi þeim, sem skilja börn og gefið hafa sér tíma til að athuga þau að leikjum, ekki þykja allfjarri sanni, að leikirnir eigi sér uppsprettu í eðli barnsins, nánar tiltekið, einkum í eftir- töldum, þremur, eðlisþáttum: Náms- hvöt, sköpunarþörf, drottnunargirni. Heilbrigt barn á erfitt með að vera iðjulaust. Og venjulegast fullnægir það athafnaþörf sinni í leik. Og þegar að er hugasemdir frá lesendum berist blaðinu í sambandi við uppeldismálasíðuna. Yrði slíkt að sjálfsögðu vel þegið og tekið til athugunar eftir ástæðum. „Foreldrablaðið“ kemur út aðeins einu sinni á ári. Verksvið þess hefur því ætíð verið nokkuð takmarkað og höfum við kennarar oft fundið nauðsyn þess að ræða málefni alþýðufræðslunnar á víð- ari grundvelli en unnt hefur verið í því. Með þessari samvinnu við blöðin, sem nefnd hefur verið opnast víðara starfs- svið og nýir möguleikar. S. H. gætt, kemur í ljós, að leikurinn hefur ákveðinn tilgang, barninu að vísu óaf- vitandi. Hann á að fullnægja líkamlegri og andlegri vaxtarþörf. Hann er barninu hentug leið til nýsköpunar og hagkvæm hjálp til að breyta umhverfinu, eftir duttlungum ímyndunarafls barnsins. Og leikurinn verður barninu uppbótar- möguleiki, vegna smæðar þess gagnvart fullorðna fólkinu og kröfum þess, og gagnvart hinu volduga umhverfi, sem oft er barninu óskiljanlegt. Hér skulu nefnd nokkur dæmi þessu til sönnunar: 1. Börn iðka leiki til þess að þjálfa líkama sinn. Ungbörn sprikla öllum öngum og auka með því hreyfi- tækni sína og samstilla vöðvana. Eldri börn hoppa, hlaupa og kasta, og beita ýmsum öðrum ráðum í sama tilgangi. Þá grípa börn snemma til leiksins, í því skyni að þjálfa málið. Þau babla með vörunum, þau blaðra með tungubrodd- inum, þau leikja sér með upptungunni og búa þannig þrjá aðalmyndunarstaði hljóða málsins undir væntanlegt, hnit- miðað, nákvæmnisstarf. Og hljóðaleikir þeirra mæða bæði á munni og nefi, því að málið leggst um báðar þessar leiðir. Leikir þessir kallast hreyfi- og þjálfun- arleikir. 2. Snemma vaknar löngun hjá barninu til að kynnast umhverfinu eftir beztu föngum og rannsaka það. Og það velur til þess leikhliðina. Smábarnið ber allt, sem það getur, upp að vörunum, eða stingur því upp í sig. Þetta eru fyrstu rannsóknartæki þess. „Varirnar og tung- an eru fyrstu fingur barnsins“, hefur

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.