Foreldrablaðið - 01.02.1943, Síða 43
FORELDRABLAÐIÐ
43
Vinnuskilyrðin
tryggja
yður
Fljóta og g’óda vínnu
Þau eru bezt í
RAFMAGNSFAGINU
á VESTURGÖTU 3.
BRÆÐURNIR ORMSSON
menningararf eldri kynslóða. Hollur, ó-
hindraður leikur, er sá máti, sem barn-
inu verður nota drýgstur til alhliða
þjálfunar líkama og sálar. Með leiknum
leysir barnið úr læðing blundandi krafta,
eykur færni sína og vinnur sér inn
reynsluforða, sem kemur sér vel í önn
dagsins, hvenær sem er á ævinni. Þann-
ig verður leikur barnsins eins konar for-
leikur fullorðinsáranna. Og má oft á
hinu leikandi barni sjá, hvert krókurinn
beygist.
„Þau börn, sem fengið hafa tækifæri
til að leika sér eftir eðli og óskum á
leikaldri, hafa meiri skilyrði til að verða
sjálfstæðir og nýtir borgarar en börn,
sem meinað er að leika sér eðlilega“,
segir frægur nútíma barnasálarfræð-
ingur.
Og börn eiga að fá að leika sér lengur
en hinn svo-kallaða leikaldur, eða leng-
ur en sem smábarn i heimahúsum.
Það er hættulegur misskilningur að
halda ,að börn, sem byrja að sækja skóla,
eigi að hætta að leika sér. Sá misskiln-
ingur, á þroskagildi leiksins í þjónustu
námsstarfsins, kemur skjótt fram í orða-
tiltækjum um skólastarf barna, sem
stundum hljóða á þessa leið: Þetta er
allt hreinn og beinn „leikaraskapur“.
Ég vil, að barnið mitt læri.
En sannleikurinn er sá, að hin snöggu
umskipti byrjandans, frá leikfrelsi
heimilisins til formfestu, aga og þurrs
starfs skólans, geta verkað eins og
straumrof á vaxtarþróun barnsins.
Grundvöllur námsins fyrir yngstu
nemendur, og á vissan hátt einnig eldri
nemendur, á einmitt að vera leikurinn
— námsleikurinn. Leikurinn á að vera